Orð og tunga - 01.06.1988, Blaðsíða 38
26
Orð og tunga
6.2 Nafnorð
I töflu 13 er sýnd heildartíðni nafhorða (orða, orðmynda, beygingarmynda og
lesmálsorða). Þar sést meðal annars að meðaltíðni nafhorða er aðeins 3,41 en
eins og sást í töflu 7 er meðaltíðni allra orða í könnuninni 7,69. Hvert nafnorð
kemur því tiltölulega sjaldan fyrir miðað við flesta aðra orðflokka eins og sjá má
reyndar á tölum um meðaltíðni þeirra hér á eftir.
Tíðni Að meðaltali
orðmyndir beygingarmyndir lesmálsorð
Orð Orðmyndir Beygingarmyndir Lesmálsorð 4.033 6.386 7.166 13.742 1,58 1,78 1,12 3,41 2,15 1,92
Tafía 13: Tíðni nafnorða
Þá er komið að málfræðiatriðum nafnorða. I töflu 14 kemur fram tíðni falla,
kynja og talna nafnorða, talið í lesmálsorðum. Ef litið er fyrst á kyn nafnorða sést
að flest dæmi finnast um hvorugkynsorð, eða 34,85%, en skipting milli kynjanna
þriggja er þó tiltölulega jöfn. Það sem nefnt er „Annað" í töflunni eru orð
sem ekki voru kyngreind, sbr. kafla 5.2.3. Ef litið er á föllin vekur athygfi að
eignarfall er áberandi sjaldgæfast, en hin föllin þrjú eru nærri jafn algeng þótt
Karlkyn Kvenkyn Hvorugkyn Annað Alls
Tíðni % Tíðni % Tíðni % Tíðni Tíðni %
nf þf þgf ef 1.444 32,00 1.185 26,26 1.143 25,33 741 16,42 1.266 29,11 1.355 31,16 1.196 27,50 532 12,23 1.100 22,97 1.254 26,19 1.607 33,56 828 17,29 33 12 31 15 3.843 27,97 3.806 27,70 3.977 28,94 2.116 15,40
et ft 2.978 65,99 1.535 34,01 3.127 71,90 1.222 28,10 3.158 65,94 1.631 34,06 88 3 9.351 68,05 4.391 31,95
Alls 4.513 32,84 4.349 31,65 4.789 34,85 91 13.742
Tafía 14: Kyn, tala og fall nafnorða
þágufallið hafi vinninginn. Ekki er gott að segja hvort munurinn sem fram
kemur á nefnifalli, þolfalli og þágufalli er marktækur en ekki er ósennilegt að
meiri efnivið þurfi til að geta fullyrt um það hvert þeirra er algengast. Þá má
einnig benda á að þessi þrjú föll hafa misháa tíðni eftir kyni nafnorðanna; þannig
er nefnifallið algengasta fall karlkynsorða, þolfalhð algengasta fall kvenkynsorða