Orð og tunga - 01.06.1988, Page 198

Orð og tunga - 01.06.1988, Page 198
186 Orð og tunga áföngum. Upphaflega var patgen-forritið sett upp á IBM AT tölvu og samin línuskiptingartafla árið 1986. I ljós kom að þessi tölva með stýrikerfinu MS-DOS hafði ekki nægt vinnsluminni til að geta búið til þessar töflur með góðu móti. Því bar nokkuð á villum í línuskiptingum TgX fyrsta kastið. Haustið 1987 eignaðist Orðabókin tölvu af gerðinni IBM 6150 (RT/PC) með stýrikerfmu AIX (UNIX). Var patgen flutt á þá vél og endurþýtt þar með smávægilegum breytingum og búin til ný línuskiptingartafla í nóvember það ár. Patgen hafði úr miklu orðasafni að moða þegar íslenska línuskiptingartaflan var búin til. Á árunum 1984 til 1986 útbjó Orðabók Háskólans orðasafn fyrir IBM á Islandi til að nota við leiðréttingarforrit eða Ritskyggni sem fylgir rit- vinnslukerfum IBM. I orðasafninu voru rúmlega 210.000 orðmyndir. Getið var um línuskiptingar fyrir orðmyndirnar og lá því beint við að leyfa patgen að spreyta sig á þessu orðasafni. IBM á Islandi veitti góðfúslega leyfi til að orða- safnið yrði notað í þessum tilgangi og kann ég Gunnari M. Hanssyni forstjóra' bestu þakkir fyrir það. Fyrsta línuskiptingartaflan (sem útbúin var á AT-tölvu eins og fyrr er getið) var gerð með því að taka 10. hvert orð úr þessu orðasafni og keyra forritið á þeim, alls rúmlega 20.000 orðum. Þegar lokið var við fyrstu töfluna var hún notuð til að skipta orðum í öðru orðasafni á milli lína. Það orðasafn varð til við viða- mikla tíðnikönnun á textum er alls tók til rúmlega 1.100.000 lesmálsorða. Alls reyndust orðmyndirnar vera 73.823. Allnokkuð var um villur í línuskiptingum en farið var yfir þær allar og rangar skiptingar leiðréttar. Þegar kom að seinni keyrslum á patgen undir AlX-stýrikerfinu var því um að ræða tvö orðasöfn með línuskiptingum: Heiti skrár Orðafjöldi Orðskiptingarbönd ibm.safn tídni.safn 210.392 73.823 367.608 119.179 Tafía 1: Orðasöfn sem notuð voru við að fínna íslensk línuskiptingarmynstur. Ur þessum efniviði var búin til skrá fyrir patgen að vinna með. í skránni var að finna 6. hverja orðmynd úr ibm.safn ásamt öllum orðmyndum skrárinnar tíðni.safn. Þessi skrá fékk heitið keyrsla. safn. Skránni var raðað í rétta stafrófsröð og síðan séð til þess að hvert orð kæmi aðeins fyrir einu sinni í skránni. Alls voru í skránni 106.312 orð. I þeim voru 177.666 línuskiptingarbönd eða að meðaltali 1,67 í hverju orði. Að lokinni hverri umferð skiptir patgen öllum orðum í safninu sem unnið er með milli lína ef óskað er. Er þá hægt að kanna árangurinn og átta sig á hvers eðlis villurnar eru. Villur í orðskiptingu eru tvenns konar. Annars vegar eru hreinar villur þar sem forritið skiptir orðum á stöðum þar sem ekki er heimilt að skipta þeim.3 Hins vegar eru villur þar sem forritinu sést yfir möguleika á að skipta. Fyrri 3Stundum eru slíkar skiptingar þess eðlis að þær gætu verið réttar ef merking orðsins væri önnur en hún er I reynd, t.d. prents-miðja.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232
Page 233
Page 234
Page 235
Page 236
Page 237
Page 238
Page 239
Page 240
Page 241
Page 242
Page 243
Page 244
Page 245
Page 246
Page 247
Page 248
Page 249
Page 250
Page 251
Page 252

x

Orð og tunga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.