Orð og tunga - 01.06.1990, Page 51
Jón Hilmar Jónsson: Að snúa orðum á íslensku
29
Áherslan á þetta gildi þýðinganna hefur að vissu leyti yfirskyggt önnur markmið.
Sú hugsun situr ekki alltaf í fyrirrúmi að þýðingarnar skuli tryggja sem bestan
skilning á orðinu sem þær eiga við. Þörf erlendra lesenda fyrir að nota þýðing-
arorðin hefur lengst af verið lítið sinnt. Notagildi þeirra við þýðingastörf þori ég
ekki að meta, enda erfitt að finna sanngjarnan mælikvarða í þeim efnum. Eg er
þó ekki í vafa um að notagildi íslenskra orðabókaþýðinga gæti aukist stórlega ef
meira tillit væri tekið til þarfa og um leið reynslu þýðenda og lesendur fengju
að njóta góðs af hugkvæmni þeirra og innsæi. Tillit til samfelldra þýðingartexta
er raunar nauðsynlegt frá því almenna sjónarmiði að orðabækur skuli sem mest
endurspegla raunverulega málnotkun. Sú endurnýjun sem þangað má sækja er
virkasta ráðið til að hamla gegn ofvexti og þrásetu óvirkra orða í orðabókum.
Hér þyrftu orðabókahöfundar og þýðendur að taka höndum saman sjálfum sér,
orðabókanotendum og íslensku máli til hagsbóta.
Heimildir
Björn Jónsson. 1896. Jónas Jónasson. Ný dönsk orðabók með íslenzkum þýðingum.
[Formáli.] Reykjavík.
Freysteinn Gunnarsson. 1926. Dönsk orðabók með íslenzkum þýðingum. Reykjavík.
Jón Hilmar Jónsson. 1985a. Islensk orðabók handa skólum og almenningi. Ritstjóri:
Arni Böðvarsson. Onnur útgáfa, aukin og bætt. Reykjavík, 1983. [Ritdómur.] Islenskt
mál 7:188-207.
Jón Hilmar Jónsson. 1985b. Sören Sörenson. Ensk-íslensk orðabók með alfræðilegu ívafi.
Jóhann S. Hannesson bjó til prentunar ásamt fleirum. Reykjavík, 1984. [Ritdómur.]
Skímir 159:287-297.
Landau, Sidney I. 1989. Dictionaries. The Art and Craft of Lexicography. Cambridge
University Press, Cambridge.
Tomaszczyk, J. 1983. The case for bilingual dictionaries for foreign language learners.
R.R.K. Hartmann [ritstj.]. Lexicography: Principles and Practice-Al-bX. Academic
Press, London.
Orðabækur:
Árni Böðvarsson [ritstj.]. Islenzk orðabók handa skólum og almenningi. Reykjavík 1963.
2. útgáfa, aukin og bætt. Reykjavík 1983.
Freysteinn Gunnarsson. Dönsk orðabók með íslenzkum þýðingum. Orðabók Jónasar
Jónassonar og Björns Jónssonar aukin og breytt. Reykjavík 1926.
Gösta Holm og Aðalsteinn Davíðsson [ritstj.]. Sœnsk-íslensk orðabók. Lund 1982.
Hróbjartur Einarsson. Norsk-íslensk orðabók. Oslo 1987.
Jónas Jónasson. Ný dönsk orðabók með íslenzkum þýðingum. Reykjavík 1896.
Konráð Gíslason. Dönsk orðabók með íslenzkum þýðingum. Kaupmannahöfn 1851.
Magnús Snædal [ritstj.]. Iðorðasafn lœkna. Reykjavík 1985-1989.
Sigfús Blöndal. Islensk-dönsk orðabók. Reykjavík 1920-1924.
Sigrún Helgadóttir [ritstj.]. Tölvuorðasafn. Islenskt-enskt, enskt-íslenskt. Rit Islenskrar
málnefndar 1. Reykjavík 1983. 2. útgáfa, aukin og endurbætt. Rit Islenskrar málnefnd-
ar 3. Reykjavík 1986.