Orð og tunga - 01.06.2008, Page 51
Jón Hilmar Jónsson: í áttina að samfelldri orðabók
41
mest merkingarlega einræð. Meðal nafnorða má koma í veg fyrir sam-
slátt merkingarbrigða með raðnúmerum sem greina að flettur með
sömu ritmynd. Erfiðara getur verið að beisla lýsingarorðin á þann hátt
en þar kemur sú lausn til greina að koma fyrir aðgreinandi þætti inn-
an flettimyndarinnar, t.d. með því að tilgreina lýsandi nafnorð sem
lýsingarorðið á við í tiltekinni merkingu. Þannig gæti lýsingarorðið
hvass t.d. komið fram í aðgreindum flettimyndum: hvass <augnaráð>,
hvass <brún>, hvass <gagnrýni>, hvass <hnífur>, hvass <vindur>.
Mesta sérstöðu hafa þó sagnir með sínum mikla breytileika jafnt í
merkingu sem formgerð. Til að merkingarleg einræðing meðal sagna
nái fram að ganga eru flettimyndir þeirra að langmestu leyti settar
fram sem tví- eða fleiryrt sagnarsambönd með rökliðum sínum. í orða-
netinu er tekið mið af þeirri framsetningu sem gildir um sagnarsam-
bönd í STOB, þar sem m.a. er greint á milli sambanda sem eiga við
persónuvísandi frumlag í nefnifalli og sambanda þar sem frumlagið
vísar til hluta og fyrirbæra (sjá Jón Hilmar Jónsson 2005: XXI-XXIII,
sbr. einnig Jón Hilmar Jónsson 2001a). í fyrrnefnda tilvikinu hefst sam-
bandið (flettimyndin) á nafnhætti sagnarinnar: ganga að <skilmálun-
um>, ganga af vitinu, ganga ekki heill til skógar. í hinu síðarnefnda
fer nafnliðarstrengur á undan sögninni, og sögnin kemur fram í nú-
tíðarmynd 3. persónu: <ferðin> gengur að óskum, <veðrið> gengur
niður, <varan> gengur út.
Þessi aðgerð gjörbreytir ásýnd og umfangi flettulistans og færir
sagnarsamböndin upp að hlið stakra orða sem fullgildar flettur. Ónn-
ur aðgerð í sömu átt er í því fólgin að skilgreina föst orðasambönd
meðal atviksliða sem tví- og fleiryrtar flettur.
Með þeim umbreytingum sem hér er lýst verður til flettulisti sem
rúmar flettur af ólíku tagi, allt frá stökum ósamsettum orðum til marg-
liða orðasambanda. Og flettulistann má samræma og endurbæta eftir
því sem úrvinnslu og greiningu efnisins miðar áfram, og nýjar flettur
geta bæst við hvenær sem er í því ferli.
4.3 Merkingarsambönd og merkingarheildir
Meginhlutverk orðanetsins lýsir sér að nokkru í því sem hér hefur
verið rakið um efniviðinn og uppbyggingu flettulistans. Markmið-
ið er að rekja merkingarleg vensl á milli orða og orðasambanda og
skipa saman samstæðu orðafari. Merkingarvenslin eru byggð upp út