Skagfirðingabók - 01.01.2016, Blaðsíða 10
SKAGFIRÐINGABÓK
10
Fjölskyldumenn þurftu að halda vel á
spöðunum til að hafa í sig á og víst mun
stundum hafa verið þröngt í búi hjóna
með svo mikla ómegð. Kári Jónsson
segir í minningargrein um Harald:
„Haraldur var aldrei margmáll um
sjálfan sig en auðfundið var, að Akureyri
og bernskuheimilið þar áttu sterk ítök í
huga hans. Hann bar og djúpa virðingu
fyrir minningu foreldra sinna, þótti gott
að ylja sér við minningar um fórnfýsi
þeirra, iðjusemi og heiðarleik.“ Varstu
aldrei svangur? spurðu börn hans síðar
og hann svaraði með semingi: „Neeei, en
ég hefði oftast þegið meiri mat.“
Formleg skólaganga Haraldar var ekki
löng. Hann gekk um hríð í barnaskóla
hjá Páli J. Árdal. „Seinna byrjaði ég í
Gagnfræðaskólanum eftir að hann flutti
frá Möðruvöllum. Þar var ég m.a. með
Snorra Sigfússyni, ég var víst latur að
læra, en ekki óþekkur. Lífið hefur alltaf
verið minn skóli, og þar hefi ég ýmislegt
lært. Nóg fyrir mig, eða svo finnst mér.“
Í gagnfræðaskólanum lærði hann þó það
mikið í ensku að það greiddi honum
götu síðar. Sr. Matthías Jochumsson
fermdi Harald. „Hann var bæði stór
og kempulegur, en ekki hrósuðu nú
allir ræðunum hans. Hann var dálítið
einkennilegur og tautaði oft fyrir munni
sér þegar hann var á gangi úti.“
Olgeir Júlíusson var 14 árum eldri en
Haraldur og hafði numið bakaraiðn og
gerðist bakari á Akureyri. Haraldur réðst
á unglingsaldri til náms hjá honum og
Axel Schiöth, en af einhverjum sökum
líkaði honum ekki starfið, „leiddist það
þessi ósköp, mér féll verulega illa við
starfið, svo illa, að ég varð að hætta“
María og Júlíus í Barði með börn sín. Efri röð f.v.: Haraldur, Jóhannes, Olgeir, Friðrik,
Vilhjálmur. Fremri röð f.v.: Kristrún, María, Þorgerður, Júlíus, Jakobína.
Eigandi myndar: Sólveig Kr. Einarsdóttir.