Skagfirðingabók - 01.01.2016, Blaðsíða 190
SKAGFIRÐINGABÓK
190
1 Jón Steingrímsson fer í Ævisögu sinni (Rvík 1973, 266–267) fögrum orðum um »þau góðu höfðingshjón«
Jón Teitsson og Margréti Finnsdóttur í Gaulverjabæ.
2 Kennarar í latínuskólunum gömlu voru oft kallaðir heyrarar (á þýsku: Zuhörer), sem mun dregið af því að
mikil áhersla var lögð á utanbókarlærdóm. Hlutverk kennarans var því m.a. að (yfir)heyra nemendurna.
biskup átti annan dótturson, Finn
Magnússon prófessor í Kaupmannahöfn,
sem var 15 árum yngri en Gísli. Hann
kemur hér einnig við sögu.
Gísli Jónsson prestur
GÍSLI JÓNSSON (1766–1838) fæddist
í Gaulverjabæ í Flóa, sonur Jóns Teits-
sonar (1716–1781) síðar biskups á Hól-
um og Margrétar Finnsdóttur (1734–
1796). Margrét var stórættuð, dóttir
Finns Jónssonar (1704–1789) Skálholts-
biskups og konu hans Guðríðar Gísla-
dóttur (1707–1766). Afi Guðríðar var
Jón Vigfússon (1643–1690) biskup á
Hólum, og bróðir hennar var Magnús
Gíslason (1704–1766) amtmaður, fyrsti
Íslendingurinn sem gegndi því embætti.
Þegar Jón Teitsson varð biskup 1780,
fluttist fjölskyldan heim að Hólum en
naut dvalarinnar þar stutt, því að Jón varð
brátt af heimi kallaður (16. nóvember
1781). Margrét var áfram á Hólum til
1784, þegar nýr biskup tók við. Fluttist
hún þá með börnum sínum að Neðra-Ási
í Hjaltadal, sem var ein þeirra jarða sem
biskupsekkjur nutu afgjalds af, og bjó
þar til dauðadags, 1796. Varð hún fyrir
miklum búsifjum í Móðuharðindunum
1783–1784.1 Gísli var tekinn í Hólaskóla
1780 og nam hjá Halldóri Hjálmarssyni
(1745–1805) konrektor sem þá bjó í
Hvammi í Hjaltadal. Hann varð stúdent
1784 með mjög góðum vitnisburði. Var
síðan heyrari2 (kennari) á Hólum 1791–
1796 og var á sumrum í Hofstaðaseli
hjá Halldóri konrektor. Hann kvæntist
Ingigerði (1777–1838) dóttur Halldórs
haustið 1796. Þau bjuggu í Hofstaðaseli
frá 1797 en frá 1806 á Hólum, sem
Gísli hafði keypt hálfa á móti Páli
Hjálmarssyni. Þeir félagar, Gísli og Páll,
hafa komist í sögubækur fyrir að hafa látið
rífa Auðunarstofu hina fornu (um 1810)
og selja timbrið úr henni til að auðvelda
sér jarðarkaupin. Gísli var prestur á
Hólum 1817–1828, fékk síðan Stærri-
Árskóg á Árskógsströnd við Eyjafjörð,
fluttist þangað vorið 1828. Hann tók
aðstoðarprest, Hákon Espólín 1834,
lét af prestskap haustið 1837 og fluttist
Finnur Jónsson biskup í Skálholti.
Mynd úr Kirkjusögu Finns Jónssonar, 4. bindi.