Skagfirðingabók - 01.01.2016, Blaðsíða 80
SKAGFIRÐINGABÓK
80
Gamalíelssyni, þeim ágæta manni, sá ég að
peningar mínir mundu alls ekki hrökkva
til fæðiskaups og húsaleigu yfir veturinn
og heimferðar um vorið. Ég afréð því
að hafa skrínukost og það gerði ég allan
þennan vetur. Nokkuð fram eftir vetri
keypti ég mér eina heita máltíð í viku,
oftast á sunnudag, annars lifði ég mest
á kakó og rúgbrauði, oftast gat ég haft
eitthvað ofan á þessar rúgbrauðssneiðar
sem ég hafði með kakóinu. Um jólin
leið mér einna verst. Ég lá þá í rúminu
í einhverri pest. Fáir eða engir komu til
mín og mér sárleiddist. Á jóladagskvöldið
orti ég eftirfarandi vísu. Þó ekki sé
skáldskapnum fyrir að fara sýnir hún þó
nokkuð, en vísan er svona:
Að líðan minni er lítið spurt,
litla björg fékk maginn.
Kakóblöndu og brauðið þurrt
ég borðaði á jóladaginn.
Og ekki var það mikið ríflegra aðra daga.
Til þess að spara ljós og hita las ég svo
oft sem ég gat uppi á Landsbókasafni
og sparaði þannig margan pening. En
oft var óvistlegt í kulda og hríðum að
koma heim í kalda og óupplýsta íbúðina,
en hvað um það, ég sullaðist svona af
þennan vetur og slapp skuldalaus heim
til átthaganna um vorið. Aldrei fór ég á
dansleiki aðra en þá sem við nemendur
héldum í skólanum sjálfum. Á einn
sjónleik fór ég þennan vetur, mig minnir
að það væri Kinnarhvolssystur [eftir
Johann Carsten Hauch] sem verið var
að leika. Tvisvar fór ég í kvikmyndahús.
Þetta var allur sá óþarfi eða munaður
sem ég lét eftir mér og er varla hægt að
segja að það gæti minna verið, fyrst það
var nokkuð. Ekki get ég sagt að ég liði
beinlínis sult þennan vetur, en þó fann
ég oft til svengdar þegar ég gekk hjá
húsum sem ilmandi matarlykt lagði frá.
Næsti vetur varð mér þyngri í skauti.
Þegar skóla var lokið hélt ég norður í
átthagana. Var kaupamaður á Hraunum
Kennaraskólinn gamli
við Laufásveg. Húsið
var byggt 1908. Einar
Erlendsson, húsameistari
ríkisins, teiknaði húsið en
yfirsmiður var Stein-
grímur Guðmundsson.
Húsið er nú í eigu
Kennarasambands
Íslands, sem hefur þar
skrifstofur sínar.
Eigandi: Minjasafnið á
Akureyri BS 0790.