Skagfirðingabók - 01.01.2016, Blaðsíða 98
SKAGFIRÐINGABÓK
98
1851, eftir fyrra Slésvíkurstríðið, er hann
titlaður „Generalmajór í skothernum,
Stórkross af D. og D.M., riddari af St.
Önnu orðunnar 1. flokki m.m.“
Þeir íslensku menntamenn í Kaup-
mannahöfn, höfuðborg Íslands í nærfellt
500 ár, sem ég tel hafa átt mestan þátt í
að lag Meza, Romanza islandese og ljóð
Jónasar, Man eg þig, mey!, náðu saman,
voru Grímur Thomsen (1820–1896),
Gísli G. Brynjúlfsson (1827–1888) og
Konráð Gíslason (1808–1891). Allir
voru þeir félagar í HÍB, þegar Meza
gekk í félagið og skráðir ásamt honum
1858. Jónas Hallgrímsson (1807–1845)
var félagi frá 1834 til dauðadags. Ekki er
vitað um kunningsskap hans við Meza.
(Páll Valsson í samtali 11. mars 2016.)
Grímur kynnist de Meza
GRÍMUR Þorgrímsson Thomsen, sonur
gullsmiðsins á Bessastöðum og k.h.
Ingibjargar Jónsdóttur, systur Gríms
amtmanns, var skráður í Hafnarháskóla
1837, fyrst í lögfræði, en lagði brátt
stund á heimspeki og bókmenntir. Hann
skrifaði samkeppnisritgerð í fagurfræði
1841 um skáldskap Frakka á 19. öld og
meistaraprófi lauk hann með riti sínu
um Byron lávarð 1845.
Í bók Aðalgeirs Kristjánssonar, Nú
heilsar þér á Hafnarslóð, segir á bls.
260: „Á stúdentsárum sínum kynntist
Grímur Chr. Jul. de Meza og konu
hans, Elizabeth Birgitte (1793–1861),
systur A. F. Tscherning ráðherra. Enda
þótt de Meza væri hermaður að mennt,
lagði hann jafnframt mikla stund á
tónlist og bókmenntir. Hann var frábær
málamaður og franska var höfð í hávegum
á heimili hans. Þar komu saman skáld og
listamenn og nutu gestrisni húsráðenda.
Sum kvöldin var eingöngu töluð franska
og væntanlega hafa franskar bókmenntir
þá skipað öndvegið.“
Þegar Bessastaðaskóli var fluttur til
Reykjavíkur sótti Grímur Thomsen um
kennarastöðu. Í umsókninni 29. mars
1846 segist hann hafa stundað talæfingar
í frönsku með major de Meza eins og
meðfylgjandi vottorð sýni. Stöðuna
fékk hann ekki. Hins vegar fékk hann
skömmu síðar 1.200 dala ferðastyrk
frá konungi. Tilgangur Gríms var að
fullnuma sig í ensku og frönsku.
Hann ferðast um Evrópu næstu
árin. Vorið 1847 flytur hann til
Christian Julius de Meza hershöfðingi.
Mynd af netinu.