Skagfirðingabók - 01.01.2016, Blaðsíða 55
KAUPMANNSHJÓNIN Á SAUÐÁRKRÓKI
55
1957, sölustjóra í Reykjavík, kona hans
er Anna Rós Bergsdóttir kennari, og
Guðrúnu Kristínu, f. 1961, verkefnis-
stjóra hjá landlækni. Guðfinnur lést 27.
ágúst 2000.
Haraldur ólst upp í fátækt og það
mótaði lífsskoðanir hans. Hann hafði
einbeittan vilja til þess að hefja sig upp
úr basli og tókst það með mikilli elju og
yfirlegu. Hann var skyggn á tækifæri og
greip þau, hamraði járnið meðan það var
heitt. Hann hreifst af Hannesi Hafstein á
æskuárum, ekki síst vegna einurðar hans
í símamálinu, og „þótti langt að bíða
eftir því að fá að kjósa. Mig langaði til að
kjósa Hannes Hafstein. Síðan hefur það
aldrei hvarflað að mér að kjósa annað en
Sjálfstæðisflokkinn.“
Hann var kosinn fyrsti heiðursfélagi
Sjálfstæðisfélags Sauðárkróks á 85 ára
afmæli sínu 14. febrúar 1970. Hann
sótti fundi á vegum flokksins og tók
sæti á framboðslistum. Hið pólitíska
litróf kringum Harald er forvitnilegt.
Einar bróðursonur hans Olgeirsson
kom nokkrum sinnum á Krókinn til
að stappa stálinu í kommúnistana í
bænum og færa þeim línuna, haldreipið
við málstaðinn. Hann heimsótti jafnan
frænda sinn og gisti hjá honum, en
stjórnmál bar ekki á góma í viðræðum
þeirra; Haraldi þótti afar vænt um
þennan glæsilega unga mann sem var
sögufróður og skemmtinn. Einhverju
sinni var Einar að koma norður á
kommafund í Gúttó, en rútan festist í
snjó fram á Vatnsskarði og farþegum var
hóað heim á bæ. Þaðan hringdi Einar í
Harald sem síðan rölti suður í Gúttó til
að segja mönnum sem biðu foringjans
að fundi væri frestað. Einn viðmælenda
minnist þess að hafa setið í stofunni með
Haraldi, Guðrúnu, Einari Olgeirssyni
og Magnúsi Bjarnasyni. Það varð
minnisstætt því að Einar fór á kostum
og sagði sögur, ekki síst af Ólafi Thors
sem hann bar vel söguna. – Haraldur
skrifaði sínu fólki kumpánleg bréf, sagði
fréttir af hinu smálega, tíðindi heimsins
voru annars staðar. „Elsku frændi minn,“
María með Magnúsi
móðurbróður sínum (t.v.)
og Einari Guðfinnssyni,
tengdaföður sínum. Myndin
er tekin á heimili Einars.