Skagfirðingabók - 01.01.2016, Blaðsíða 18
SKAGFIRÐINGABÓK
18
varð ekki langlífur og tók Bjarni þá við
búsforráðum með móður sinni. Hann
lærði járnsmíðar hjá Sigurði Ólafssyni
á Hellulandi sem á sínum tíma var
héraðsfrægur maður og þó víðar væri.
Hann hugsaði meira um nýjungar en
framkvæmdir á eigin jörð. Meðal hugar-
fóstra hans voru svifferjurnar sem settar
voru á Héraðsvötn til samgöngubóta.
Bjarni barst austur á Vopnafjörð árið
1892 með Árna Jónssyni lækni sem var
um skeið héraðslæknir Skagfirðinga
og sat í Glæsibæ í Víkurtorfu. En þessi
austurför var ekki ófyrirsynju, því að
þar festi Bjarni sér konu, Kristínu
Jósefsdóttur frá Strandhöfn. Hún var
fædd 19. ágúst 1866. Hún hafði misst
móður sína á unglingsárum sínum og
var þá fyrir framan hjá föður sínum;
að þessu leyti höfðu örlögin höndlað
þau Bjarna með líkum hætti. Hún
fékk þó notið skólagöngu einn vetur á
Laugalandi í Eyjafirði.
Unga fólkið fluttist vestur í Skaga-
fjörð 1897, þar voru þau í húsmennsku
í Eyhildarholti og þar fæddist eldra barn
þeirra 19. janúar sama ár, dóttirin Guðrún
Ingibjörg (sem síðar varð kona Haraldar
Júlíussonar). Húsmennska þýðir að þau
voru innanhúss hjá bónda, en höfðu
sér heimilishald. Húsmenn áttu gjarnan
eitthvert sauðfé, en ekki kú, og bæði
unnu hjónin að hluta til búi bóndans.
Þetta var oft fyrsta skref til að efna í eigið
heimili. En í Holti urðu nýbýlingarnir
fyrir stórtjóni. Bæjarhús brunnu og allar
eigur þeirra. Þau fóru að Löngumýri
1899 þar sem Magnús sonur þeirra
fæddist 13. mars það ár, og þaðan út á
Krók 1901. Þar fékkst Bjarni við smíðar,
en átti einnig nokkrar kindur og hlut í
bát og sótti sjó; hann var hraustmenni
og sló ekki hendi móti staupi ef nauðsyn
rak hann ekki til verka, var glaðsinna og
hraustur vel, „gullfallegur maður“ sagði
Stína Sölva. Bjarni átti þátt í stofnun
verkalýðssamtaka á Króknum, vel metinn
þegn í samfélaginu undir Nöfum. Bjarni
og Kristín bjuggu fyrst þar sem heitir nú
Skógargata 3 og smiðjan hans stóð uppi
í Kristjánsklauf þar sem heitir Kambs-
stígur, og enn stendur þar hús sem heitir
Smiðjan. Í huga gróinna Króksara er þetta
ofarlega í Klaufinni, húsið á horninu þar
sem stígur liggur upp að húsi Eyþórs
Stefánssonar og Sveins Nikódemussonar
Skógargata 3 þar sem Kristín
og Bjarni bjuggu fyrst á
Króknum. Húsið t.h. er
Þórshamar í Kristjánsklauf.