Skagfirðingabók - 01.01.2016, Blaðsíða 101
DE MEZA HERSHÖFÐINGI OG ÍSLENDINGAR
101
fullyrðingu líklegri, vil ég minna á það,
að Skagfirðingar samþykktu áskorun
til Alþingis 1891 um að veita séra
Matthíasi Jochumssyni skáldalaun fyrir
kvæðið sem hann orti um Skagafjörð.“
Indriði Einarsson var Skagfirðingur,
stúdent 1872, kandídat í hagfræði,
fyrstur Íslendinga frá Hafnarháskóla
1877. Hann var systursonur Konráðs
Gíslasonar prófessors, sem brátt kemur
hér við sögu.
Dagbók í Höfn Gísla G. Brynjúlfs-
sonar (útg. Heimskringla 1952), var
búin til prentunar af Eiríki Hreini
Finnbogasyni sem í inngangi segir frá
miklum ritstörfum Gísla um tvítugt,
einkum 1848, er hann yrkir óvenju mörg
kvæði, gefur út Norðurfara (1848–49)
og ritar hina sérstæðu og merku Dagbók
sína. Jón Thoroddsen skáld (1818–
1868) var meðútgefandi að Norðurfara,
en Gísli ritaði meirihlutann sjálfur, m.a.
um frelsishreyfingar í Norðurálfunni,
Slésvíkurstríðið og de Meza. (Jón var
sjálfboðaliði í her Dana um tíma.)
Af Dagbókinni er ljóst að Gísli er
heimagangur hjá Meza-hjónunum, sem
hann kynntist snemma árs 1846, og
móðir hans stundum með í för. Dag-
bókin er 235 bls. (1. jan. – 31. des.
1848). Í nafnaskránni eru 27 vísanir til
hershöfðingjans og átta til konu hans.
Nokkur slitrótt dæmi eru: „4. jan. – Farið
á fætur kl. 10. Ýmsir komu. Kjaftað. Etið.
Slórt. Til Meza kl. 7. Lesið frakknesku og
talað íslensku. 11. jan. – Farið til Meza
með mömmu kl. 6, lesið frakknesku og
íslensku. Fylgt mömmu heim kl. 11.
14. jan. – Til Meza. Lesið íslensku með
honum í Fjölni (Hreiðarshól). Þar var
Capitain Tscherning, kona hans og fleira
fólk. 7. mars – Til Meza kl. 6. Lokið við
Bjarnar sögu með honum og stílað fyrir
hann bréf á íslensku til Konráðs. 28.
mars – Meza kom að kveðja mig, hann á
nú að fara til hertogadæmanna í hernað,
og bið ég guð að hlífa honum, þó þau
losni, sem ég vil, en hann skal ei falla, því
mér er vel við hann og vildi sjá honum
aftur heimkomu auðið, en guð má ráða.
29. mars – Til Meza kl. 3, en æ!, hann
var farinn, mér þótti verst að geta ei kvatt
hann alminilega en ég vona honum gangi
allt vel. Það er ónotalegt, ég vil endilega,
að Þjóðverjar vinni og losni við þessa
vesælu Danmörk, en ég vil líka, að Meza
takist allt vel, en það má reyndar vel fara
saman. 3. júní – Til frú Meza og setið
þar lengi; þó hún sé skynsömust danskra
kvenna, þá hefur þó villan, sem nú er
yfir fólki hér, náð til hennar; hún var
líka mót einingu Þýskalands, og ég get
ei aðgjört. 4. júní – Ég las í rúmi mínu Gísli G. Brynjúlfsson. Mynd af netinu.