Skagfirðingabók - 01.01.2016, Blaðsíða 158
SKAGFIRÐINGABÓK
158
jarðgöngin án þess að koma þyrfti til
kostnaðarsamra varúðarráðstafana.57
Aðalrannsóknirnar fóru fram 1963 til
1964 og voru gerðar af jarðfræðingum
Atvinnudeildar Háskólans undir stjórn
dr. Þorleifs Einarssonar.58
Í blaðinu Siglfirðingi árið 1964
er grein sem nefnist: Verkið hefst að
vori Siglufjarðarmegin frá. Er hún á
þessa leið: „Fyrir skemmstu komu til
Siglufjarðar Snæbjörn Jónasson frá
Vegamálaskrifstofunni, Þorleifur Einars-
son (1931–1999) jarðfræðingur, og
norskur jarðgangafræðingur, A. Torvik,
og var þá endanlega ákveðin lega jarð-
ganganna um fjallið Stráka. Unnið er
nú að útboðslýsingu af verkfræðingum
Vegamálaskrifstofunnar og verður verk-
ið væntanlega boðið út fyrir áramót.
Ætla verður að væntanlegur verktaki
þurfi einhvern undirbúningstíma áður
en gangagerðin hefst, sem þá ætti að
geta orðið á næsta vori. Göngin verða
eilítið styttri en ákveðið var í fyrstu, eða
rúmir 800 metrar, en verða þó lengstu
og raunverulega einu jarðgöngin, sem
gerð hafa verið hérlendis í sambandi við
samgöngur. Norski verkfræðingurinn
tjáði sig í öllum höfuðatriðum sam-
þykkan niðurstöðum og athugunum
Vegamálaskrifstofunnar, taldi að óverj-
andi hefði verið að hefja gangagerðina
án þeirra undirbúningsrannsókna, sem
fram hafa farið í sumar. Hann taldi
gangagerðina vel framkvæmanlega, og
með tilliti til þess, að hér er einn fremsti
jarðgangasérfræðingur Norðmanna á
ferð, verður að telja, að bölsýnisspádóm-
ar vissra aðila hér í bæ séu í eitt skipti fyrir
öll niður kveðnir.“59
Hér kemur greinilega fram að mis-
munandi skoðanir hafa verið meðal íbúa
Siglufjarðar varðandi þessa framkvæmd,
og margar blaðagreinar voru skrifaðar
um málið, bæði af þing- og leikmönnum.
Tilboða leitað í Strákagöng
VERKIÐ VAR boðið út veturinn 1965
og var A. Torvik yfirverkfræðingur hjá
norsku vegamálstjórninni til aðstoðar
við það. Í verkið bárust fjögur tilboð. Í
hverju þeirra var boðið í tvær tillögur.
Tillaga eitt hljóðaði upp á einföld göng
með einni akrein og útskotum en í
tillögu tvö var miðað við göng með
tveimur akreinum. Tilboðin voru opnuð
þriðjudaginn 18. maí og voru bjóðendur
þessir:
Efrafall sef. Reykjavík
að upphæð kr. 18.232.000 í einföld
göng og kr. 20.380.000 í tvöföld
göng.
Möl og sandur hf. Akureyri
að upphæð kr. 20.000.750 í einföld
göng og kr. 25.548.777 í tvöföld
göng.
Magnús Jensson hf. Reykjavík
að upphæð kr. 21.726.994 í einföld
göng og kr. 26.952.600 í tvöföld göng.
Helgi Valdimarsson byggingameistari,
Garðahreppi
að upphæð kr. 25.931.288 í einföld
göng og kr. 33.774.804 í tvöföld göng.
Tekið var tilboði Efrafalls sef. upp á
kr. 18.232.000 fyrir einföld göng en
horfið var frá því að hafa göngin tvöföld.
Athygli vekur að tvöföldu göngin voru
aðeins áætluð 11,8% dýrari en einföld
göng.60