Skagfirðingabók - 01.01.2016, Blaðsíða 50
SKAGFIRÐINGABÓK
50
skreytt með öskubökkum, að ég held
einum handa hverjum bæjarstjórnar-
fulltrúa. Rakti núverandi forseti bæjar-
stjórnar Guðjón Ingimundarson nokkuð
sögu þessa tímabils, aðallega hverjir hefðu
verið bæjarstjórar og bæjarfulltrúar, svo
og samskipti [við] Skagafjarðarsýslu sem
hann lauk lofsorði á. Bæjarfógeti Jóhann
Salberg Guðmundsson flutti stutt erindi
og gat þess meðal annars að sambúð
bæjarstjórnar og sýslufundar hafi verið
styrjaldarlaus með öllu en með ágætum
góð. Þá skýrði forseti frá tillögum
hátíðarnefndar í tilefni af 100 ára afmæli
Sauðárkróks sem samkvæmt nýjustu
útreikningum fornmenntagrúskara á að
haldast árið 1971. Þá gjörði hátíðarnefnd
tillögu, að útboð verði gjört um teikningu
að skjaldarmerki Sauðárkrókskaupstaðar
og fána og að veitt skuli til þess rífleg
upphæð frá 25 þúsund krónum niður í 10
þúsund sem verðlaun. Voru allar tillögur
nefndarinnar samþykktar umræðulaust,
enda undirbúnar og ræddar áður. Að
fundarlokum söng karlakór Sauðárkróks
nokkur lög.
Þá bar til tíðinda að Haraldur Júlíus-
son rauk upp til handa og fóta og lét
breyta sölubúð sinni sem byggð var
fyrir 32 árum í sniði gömlu einokunar-
verslananna að undanskildu því að ekki
voru hengdir í loftið pottar, pönnur,
katlar, könnur, koppar m.m. Voru þessi
umbrot gjörð til þess að sölubúðin fengi
á sig örlítið brot af nýtísku verslun. Varð
þessi breyting til þess að sumir gamlir
viðskiptamenn hrukku frá dyrum og
vissu ekki hvert þeir höfðu villst, héldu
að þeir hefði farið hina leiðina, en við
fortölur og útskýringar áttuðu þeir sig
og eru á réttri leið síðan.
Í vikunni sökk trillubátur í námunda
við Grímsey, en mannbjörg varð.
Báturinn var frá Hofsósi, en keyptur
á Sauðárkrók fyrir 1–2 árum. Þá er
upptalinn minn viskubrunnur fyrir
nefnda viku, enda langt mál en lítið
efni.“ (HSk. 213, fol.)
Haraldur var eindreginn fylgismaður
Sjálfstæðisflokksins og í efnisgreininni
um breytingar á búðinni eru pólitískar
vísanir. Eysteinn Jónsson talaði þessi
misseri um stefnu Framsóknarflokksins
í efnahagsmálum og hún var jafnan
kölluð „hin leiðin“. Haraldur leiddi
viðskiptavini sína rétta leið.
Pétur Hannesson orti um alla Rótarý-
félaga brag, þar er þessi vísa um Harald:
Magnús Bjarnason kennari. Milli hans og
þeirra hjóna Haraldar og Guðrúnar ríkti
traust vinátta og einkar kært var milli þeirra
systkina. Magnús var um áratugaskeið vin-
sæll kennari, félagsmálamaður með afbrigð-
um og allt í öllu hjá Alþýðuflokknum.
Magnús var ókvæntur og barnlaus.