Skagfirðingabók - 01.01.2016, Blaðsíða 15
KAUPMANNSHJÓNIN Á SAUÐÁRKRÓKI
15
saumur (naglar), skæri og rúðugler,
baðduft og tveir rifflar, margvíslegar
pappírsvörur, vasabækur, kalkipappír,
blýantar, reglustikur og strokleður,
vatnslitir. Sælgæti af ýmsu tagi, þurrkuð
epli, borðsalt, kanill og vanilla, pipar
og hjartarsalt, smjörlíki, laukur og saft,
hveiti og hrísgrjón, haframjöl, kaffi og
kringlur. Í búðinni eru til sex ullarballar,
216 pör sjóvettlingar, 120 kg haustull
og tæp fjögur kíló æðardúnn. Þessi
upptalning er engan veginn tæmandi,
en gefur góða hugmynd um fjölbreytni
í úrvali eins og tíðkaðist í krambúðum
þessa tíma. (HSk 1190 4to: Skrár um
vöruleifar Verzlunar Haraldar Júlíussonar
1922–1929).
Í árslok 1937 dregur Haraldur saman
vörulager sinn í flokka eftir tegundum.
Kannski segja upphæðirnar nokkuð til
um veltuhraðann:
Vefnaðarvara 5.356.60
Járnvara o.fl. 3.733.95
Barnaleikföng 79.20
Emileraðar vörur 113.85
Línuverk 205.70
Hreinlætisvörur 832.00
Pappírsvörur 626.43
Súkkulaði, krydd 627.25
Brauðvörur o.fl. 1.054.75
Skótausvörur 866.80
Olíufatnaður 541.25
Tóbaksvörur 299.19
Leirtau 654.60
Málning o.fl. 532.30
Smurningsolía o.fl. 366.75
Matvara 2.063.90
(Óskráð í HSk.)
Haraldur var nákvæmnismaður um bók-
hald. Til eru gögn sem sýna afkomuna ár
hvert til 1946:
Verzlun H. Júlíusson laust eftir 1930. Grindverkið var handan götunnar.