Skagfirðingabók - 01.01.2016, Blaðsíða 54
SKAGFIRÐINGABÓK
54
Auk þess skuldaði hann Haraldi stórfé
fyrir bensín. Haraldur mun því ekki hafa
reitt fé af hendi fyrir íbúðina. Bjarni og
María eignuðust tvær dætur, Guðrúnu,
f. 1957, félags- og sjúkraliða, maður
hennar er Poul Sørensen umsjónarmaður
og búa þau í Hróarskeldu, og Helgu,
f. 1959, veitingakonu í Reykjavík,
maður hennar er Hafsteinn Hässler
framkvæmdastjóri. Þau María og Bjarni
skildu árið 1960 og fluttist hún þá suður
með dæturnar. Þær voru þó mjög mikið
fyrir norðan og Guðrún gekk þar í skóla
um hríð. – Seinni kona Bjarna er Ásdís
Kristjánsdóttir, f. 25. febrúar 1931,
sonur þeirra er Lárus Ingi, f. 1962,
matreiðslumaður, starfsmaður Kjöríss,
hann er kvæntur Aldísi Hafsteinsdóttur
bæjarstjóra í Hveragerði. Bjarni og Ásdís
gengu í hjónaband 17. júní 1998.
María Haraldsdóttir giftist 17. apríl
1955, á afmælisdaginn sinn, Guðfinni
Einarssyni forstjóra í Bolungarvík. Brúð-
hjónin voru gefin saman með viðhöfn á
Sauðárkróki og Guðrún og Haraldur
héldu veglega veislu. Þau hjón settu
saman bú í Bolungarvík, en komu þó
mjög oft á Krókinn. Guðfinnur stýrði
öflugri útgerð og gestkvæmt var hjá
þeim Maríu og komu menn víða að,
bæði Íslendingar og útlendingar. María
var mjög virk í kvenfélaginu Braut-
inni í Bolungarvík, lengi formaður
Sjálfstæðiskvennafélagsins í bænum og
auk þess sinnti hún leiklistarmálum
af krafti og rættist þar að sumu leyti
gamall draumur. Þau Guðfinnur eign-
uðust þrjú börn, Einar Kristin, f. 1955,
forseta Alþingis, kona hans er Sigrún J.
Þórisdóttir bankastarfsmaður, Harald, f.
María Haraldsdóttir og Guðfinnur Einarsson með börn sín, f.v.: Haraldur, Guðrún Kristín og
Einar Kristinn. Myndin er tekin laust fyrir 1980.