Skagfirðingabók - 01.01.2016, Blaðsíða 192
SKAGFIRÐINGABÓK
192
5 Kolbeinn Kristinsson: Þáttur Mála-Björns Illugasonar. Skagfirðingabók 4, 1969, 18–48. Björn flæktist (að
ósekju) inn í mál Reynistaðarbræðra, sem setti mark sitt á hann.
6 Kolbeinn Kristinsson: Þáttur Benedikts Vigfússonar prófasts. Skagfirðingaþættir, Skagfirzk fræði X, 1956,
26.
á lofti að sum verk hans halda enn gildi
sínu. Má þar nefna Grönlands historiske
mindesmærker I–III (Kbh. 1838–1845),
þar sem eru dregnar saman nær allar
heimildir sem til eru um norræna menn
á Grænlandi. Finnur átti mestan þátt í
útgáfu þess, þó að Carl Christian Rafn
hafi einnig verið skráður útgefandi.
Einnig sá Finnur að mestu um útgáfu á
Árbókum Espólíns 1–12 (Kmh. 1821–
1855). Finnur var eins og Gísli mikill
bókamaður. Hann átti löngum í miklum
fjárhagserfiðleikum, sem varð til þess að
hann seldi mestan hluta handrita sinna
til Bretlandseyja, en hitt var boðið upp
að honum látnum.
Þeir Gísli Jónsson og Finnur Magn-
ússon voru bæði systrasynir og vinir og
skrifuðust á um langt skeið. Bréf Gísla
eru í bréfasafni Finns í Ríkisskjalasafninu
í Kaupmannahöfn. Þeir skrifast á eins og
þeirrar tíðar menntamönnum sæmir,
með tilvitnunum á latínu í klassíska
höfunda. Því er minnst á Finn hér, að
eitt af verkum hans er í Hóladómirkju.
Þar er um að ræða minningartöflu síra
Gísla Jónssonar, sem er á austurgafli í
kór, norðan við altarið.
Erfingjarnir taka til sinna ráða
SÍRA GÍSLI Jónsson dó 17. nóvember
1838 hjá Margréti dóttur sinni í Neðra-
Ási í Hjaltadal, og var jarðsettur á
Hólum. Erfingjarnir voru dætur hans
fimm:
Margrét Gísladóttir (1797–1843) ekkja
Gunnlaugs Björnssonar (1792–1836),
sem var sonur Björns ríka Illugasonar
í Neðra-Ási.5 Þau Gunnlaugur giftust
1816, voru fyrst á Hólum, en hófu
búskap í Neðra-Ási 1817. Hann var
sagður harðfengur atorkumaður;6 var
hreppstjóri Hólahrepps 1823–1836.
Þau eignuðust þrjár dætur, en aðeins
ein þeirra, Helga Gunnlaugsdóttir
(1822–1880) komst upp. Hún giftist
Guðmundi Einarssyni (1811–1841)
á Hraunum í Fljótum, bróður
Baldvins Einarssonar þjóðfrelsishetju
og útgefanda Ármanns á alþingi.
Einkasonur þeirra var Einar Guð-
mundsson (1841–1910) á Hraunum.
Finnur Magnússon leyndarskjalavörður.
Mynd úr Nýjum félagsritum, 4. árg. 1844.