Skagfirðingabók - 01.01.2016, Blaðsíða 14
SKAGFIRÐINGABÓK
14
Vöruleifar í árslok endurspegla fram-
boðið í versluninni. Fyrst er tíundað
alls konar mjöl, kaffi, export, sykur,
rúsínur o.s.frv. Síðan er talið natrón og
margarine, ostar, sardínur, brauðmyndir
(væntanlega kökuform), piparkökur,
döðlur og alls konar krydd, syltetau,
konfekt, súkkulaði og brjóstsykur.
Talsvert er til af ýmiss konar álnavöru
í hin og þessi föt á karla og konur, auk
þess blúndur, silkiborðar, silkitreflar,
manchettskyrtur, sokkar og axlabönd,
olíukápur og brodersilki, flibbahnappar,
dúkar, diskar, kristalsföt, blómsturvasar
og vatnsglös, steikarföt og 13 hrákadallar
á 2.50 kr. stykkið. Nóg er til af vindlum
og reyktóbaki og cigaretter og 7 kg af
neftóbaki. Pappír og pappírsvörur af
ýmsu tagi, þvottabalar og skóflur, pönnur,
teskeiðar, gafflar og hengilásar, skápaskrár
og lamir, hamrar og skæri, vasahnífar
og skeiðahnífar, öxi og stoppunálar,
skóburstar og fataburstar, gólfskrúbbar,
nælur, blámi og þvottaklemmur, stivelse
og handsápa, sódi og púður, eldspýtur
og stígvél, kvenskór og 6 pokar af
kartöflum, 800 stykki rjúpur, 20 pör
sjóvettlingar og 50 kg haustull. Þetta er
ekki svo lítið! Skráin sýnir ljóslega að
margir hafa lagt inn rjúpur fyrir jólin til
þess að greiða úttekt sína. Hér má bæta
við úr seinni tíma skrásetningu: kjólatau,
skyrtutau, ermafóður, nankin, sjöl og
axlabönd, sokkar, húfur, peisur, skyrtur
á karla og konur, kvenbuxur, vasaklútar,
hattar, handklæði og brodergarn, tvinni
og tannburstar, hárgreiður, handsápa,
skeggsápa, þvottasápa, skósverta, tóbaks-
pungar og tölur, cigaretter, tommu-
stokkar, tepottar og dörslag, kasseroller
og olíutunnur, matskeiðar og teskeiðar,
þvottabalar og luktir, ýmiss konar
Haraldur og Guðrún í dyrum búðarinnar um 1930, húsið nýreist og ómúrað.