Skagfirðingabók - 01.01.2016, Blaðsíða 51
KAUPMANNSHJÓNIN Á SAUÐÁRKRÓKI
51
Hygginn græðir hér fé
Haraldur, það bert er,
en bölvuð mæða ef B.P.
borgar minna en vert er.
(Rafpósturinn HSk. 217, fol.)
Í HSk. 257, 8vo eru „Vísur um Rótarý-
félaga á Sauðárkróki milli 1950–1960“,
Bændaríma, stendur þar og mun höf-
undur vera sr. Helgi Konráðsson:
Rotary er klúbbur einn er Krókinn prýðir.
Flokkur manna í frægðarljóma
fær þó sína palladóma.
Haraldur hinn hárfagri og hærum prýddi.
Yndi hans er ekkert fremur
en sá versli er til hans kemur.
Fleira var ort um Harald. Guðrún
Gísladóttir setti saman langan brag um
kaupmenn á Króknum. Þar er þetta
erindi um Harald:
Sífellt er hjá Haraldi sama traffíkin,
sjálfur er hann alla tíð á rölti,
brosandi hann pumpar alltaf bensíngeymirinn
svo bílagreyin eitthvað lengra skrölti.
Svo má ´ann líka alltaf vera að safna farþegum
og segja fyrir verkum þessum rútubílstjórum,
því alla daga, ár og síð
er áætlunarrúta í Varmahlíð.
Aðeins hænublund hann Haraldur sér tekur
því með hundrað mílna hraða hann Baldi ekur,
og hingað koma allir sem ætla í sumarfrí,
enginn þarf að furða sig á því.
Baldi er Baldvin Kristinsson bílstjóri,
Baldi blúss sem kallaður var. Gísli
Ólafsson frá Eiríksstöðum orti gaman-
brag um kaupmenn staðarins undir
dulnefninu, Flosi frá Hveravöllum. Þar
er þetta erindi um Harald:
Hjá Haraldi vörur ei vantar
og valið er dæmalaust gott.
Hann selur og pantar og pantar
þeim pilsklæddu þykir þar flott.
Þar eru ei augljósir gallar
og innanstokks gott undir bú.
Þær munu víst óska þess allar
að ´ann ætt´ ekki til dæmis frú.
Magnús Bjarnason var stakur bindindis-
maður. Hér hefur Hjörtur Laxdal bartskeri
stillt sér upp við hlið hans og heldur á einni
hálsmjórri og virðast báðir skemmta sér vel.
Hjörtur byggði Sólarborg við Kaupangstorg,
en Haraldur keypti síðar neðri hæð hússins.
Sér í Claessenshús t.v. og bensíndælu frá
NAFTA t.h.; milli Magnúsar og bensíndæl-
unnar ber slátur- og fiskvinnsluhús Stein-
dórs Jónssonar.