Skagfirðingabók - 01.01.2016, Blaðsíða 29
KAUPMANNSHJÓNIN Á SAUÐÁRKRÓKI
29
herraskyrtum, bindum, herrafötum
og nærfötum. Íslenskir slönguskór
seldust vel á tímabilinu 1920–1960
og tékkneskir hvítbotna gúmmískór
sem voru farnir að sjást um 1940 flugu
út og seljast enn og alltaf var og er til
úrval af stígvélum. Fleira fæst sem lengi
hefur verið í sölu, en sumt er alveg
horfið sem einu sinni seldist vel, eins og
munntóbakið og spýtubakkarnir sem
menn hættu að nota í kringum 1960.
Munntóbaksmenn notuðu spýtubakka
í vinnunni, en koppinn heima.“ Þjón-
ustustúlkurnar voru ekki hrifnar af
spýtubökkunum, segir Bjarni. Var haft
vatn í þeim og það þurfti að hreinsa þá
daglega. Í versluninni var ekki aðeins
hægt að kaupa vörur, heldur var einnig
hægt að senda eða ná í vörur og fá far með
bíl út í sveit eða til annarra landshluta.
Eitthvað flutti Haraldur sjálfur inn,
einkum álnavöru og leirtau. Í gögnum
frá honum eru m.a. afrit af umsóknum
um gjaldeyri fyrir innflutningi.
Innréttingar í versluninni voru með
sama sniði og í sams konar búðum,
t.d. hjá Kristni P. Briem, í verslun Árna
Daníelssonar, hjá Búbba (Þorvaldi
Þorvaldssyni í versluninni Vísi) og í
búðinni hjá Sigurði P. og Ingibjörgu
Eiríksdóttur í Drangey: Allt var afgreitt
yfir búðarborð, skúffur meðfram öllum
veggjum upp í mittishæð, hillur þar
fyrir ofan og upp í loft. Allt er þetta
nú gleymt og grafið – nema í Verzlun
Haraldar Júlíussonar. Búðin er varðveitt
í samvinnu við Byggðasafn Skagfirðinga.
Enn er til vigt sem Haraldur keypti áður
en hann opnaði búðina, hún er frá 1919
og er með sínum hætti konungleg; sjá
mynd á forsíðu. Hún var barn síns tíma
og Haraldur keypti nýja vog 1941 sem
Saumaklúbbsmynd tekin um 1938. Allar
eru konurunar uppábúnar og með sauma-
skap í höndum. Fremri röð f.v.: Kristín
Briem, Hansína Benediktsdóttir, Jórunn
Hannesdóttir, Stefanía Arnórsdóttir. Efri
röð f.v.: Rannveig Jónasdóttir, Rannveig
Líndal, Guðrún Bjarnadóttir. Hún sagði
einhvern tímann við Einar Kristin dótturson
sinn að hún myndaðist best þegar hún hall-
aði aðeins undir flatt!
Saumaklúbbur seint á sjötta áratugnum,
uppstillingin frjálsleg, engin handavinna
sýnileg. Fremstar sitja f.v.: Margrét Snæ-
björnsdóttir, Guðrún Bjarnadóttir, Ingibjörg
Jónsdóttir og Jóhanna Þorsteinsdóttir.
Aftar eru f.v.: Helga Þorkelsdóttir, Sigríður
Guðvarðardóttir, Sigríður Stefánsdóttir og
Guðný Bieltvedt. Myndin er tekin í stofunni
hjá Guðrúnu.