Skagfirðingabók - 01.01.2016, Blaðsíða 189
189
SIGURJÓN PÁLL ÍSAKSSON
MINNINGARTAFLA GÍSLA JÓNSSONAR
Í HÓLADÓMKIRKJU
SEGJA MÁ að fram yfir miðja 19. öld
hafi eina listasafn hér á landi verið í
Hóladómkirkju. Þar héngu á veggjum
allmörg málverk, flest af Hólabiskupum
frá og með Guðbrandi Þorlákssyni, en
einnig flutu fleiri með, m.a. tvö málverk
eftir hinn kunna hirðmálara Dana,
Jacques d'Agar (1642–1715), annað
af Kristjáni konungi fimmta (1646–
1699) og hitt af launsyni hans Ulrik
Christian Gyldenløve (1678–1719)
stiftamtmanni á Íslandi. Flest málverkin
eru nú í Þjóðminjasafni, en eftirmyndir
biskupamyndanna eru á Hólum.
Þann 8. ágúst 1826 vísiteraði Stein-
grímur biskup Jónsson Hóladómkirkju.
Hann var áhugamaður um fornar minjar
og lét við þetta tækifæri skrá nákvæma
lýsingu á kirkjunni og gripum hennar. Í
úttektinni segir m.a.:
Yfir kórdyrum að framan er gömul
vængjabrík, með innsettum myndum
af alabastur; þar hángir og í gylltum
ramma með gleri yfir, skilderie [mynd]
b(isku)ps dr. Finns Jónssonar.
Og í prófastsvísitasíu 19. nóvember
1860, segir:
Sunnanmegin á hliðinni [á suðurvegg]
eru andlitsmyndir biskupanna Þorláks
Skúlasonar, útsaumuð í lérepti á gylltum
ramma, Sigurðar Stephánssonar og
Steins Jónssonar á vaxdúki, hverutveggja
í gylltum römmum, og fyrir innan þau
þrjú síðast nefndu skilderier hángir í
litlum gylltum ramma með gleri yfir,
skilderi biskups dr. Finns Jónssonar.
Finnur Jónsson var að vísu biskup í
Skálholti. Hann var merkur fræðimaður
og samdi mörg rit um guðfræði og
kirkjusögu. Þekktust er Kirkjusaga
Íslands á latínu, sem kom út í fjórum
bindum á árunum 1772–1778. Finnur
hlaut doktorsnafnbót í guðfræði 1774,
fyrstur Íslendinga. Ástæðan fyrir því
að mynd hans var í Hóladómkirkju er
sú að Gísli Jónsson sem var prestur þar
1817–1828, var dóttursonur Finns,
sonur Margrétar Finnsdóttur í Neðra-
Ási. Líklegt er að Gísli hafi gefið
kirkjunni myndina. Engin mynd var til
af Jóni Teitssyni biskupi, föður Gísla, en
með myndinni af Finni fékk fjölskyldan
fulltrúa í myndasafni kirkjunnar um leið
og vakin var athygli á skyldleikanum við
þennan merkismann. Myndin af Finni
gæti hafa verið sú steinprentaða mynd
sem fylgdi fjórða bindi Kirkjusögu hans,
1778. Hún virðist hafa glatast á síðari
hluta 19. aldar, því að í prófastsvísitasíu
1. nóvember 1881 segir að þá vanti
»mynd af Finni biskupi«, sem tilgreind
var í skoðunargjörðinni 1860. – Finnur