Skagfirðingabók - 01.01.2016, Blaðsíða 12
SKAGFIRÐINGABÓK
12
hafinn. Króksarar settu heypoka í glugga
til að bægja kuldanum frá og fjölskyldur
sváfu þétt til þess að hafa hita hver af
öðrum. Um haustið sáu Skagfirðingar
bjarma fyrir Kötlugosi á suðurhimni.
Svo lauk stríðinu 11. nóvember 1918,
en hér heima var áfram tíðindasamt.
Landið fékk fullveldi 1. desember
1918, en hátíðarhöld voru í skugga
spænsku veikinnar sem drap fjölda fólks
í Reykjavík, en barst ekki norður í land.
Erlendis var ekki atvikalaust. Tyrkjaveldi
leið undir lok, nýrri skipan var skellt yfir
Miðausturlönd, en hér heima vakti meiri
athygli aftaka keisarafjölskyldunnar í
Rússlandi og stofnun Sovétríkjanna. Það
teygði anga sína heim á Krók, nokkrir
ungir menn eygðu þar sitt draumaland.
Á þessum misserum var Haraldur
Júlíusson að velta framtíðinni fyrir sér.
Hann átti 20 kindur sem hann hafði
keypt sér, eitthvert sparifé hefur hann
hugsanlega átt eftir árin hjá Kristni P.
Briem, en það dugði engan veginn til
þess að ýta verslun úr vör. En hann var
einbeittur og hugsaði skipulega. Hann
seldi ærnar sínar fyrir 2.000 kr. sem þótti
gott verð. Hann bætti sparnaði sínum í
púkkið og sló lán norður á Akureyri upp
á gamlan kunningsskap, m.a. hjá fyrrum
vinnuveitanda sínum, Karli Schiöth, og
Axel bróður hans, bakarameistaranum.
Það segir nokkuð um manninn að hann
naut lánstrausts hjá gömlum vinum
sínum þótt þeir hefðu naumast séð hann
um nokkurra ára skeið, jafnvel þótt
fyrirhugaður rekstur væri áhættusamur í
meira lagi. „Ég var mikið heimskaður af
mörgum að selja ærnar. Sumum fannst
þetta líka oftrú á framtíðina að ætla sér
að setja upp verzlun, sögðu sem var, að
þær væru nógar fyrir“ segir Haraldur
í viðtali við Björn Daníelsson á hálfrar
aldar afmæli verslunar sinnar.
Næsta hús norðan við Briemsbúð
var Bræðrabúð – hún brann 1941 í
seinna stríði og ekki hefur verið byggt
á lóðinni síðan; búðargrunnurinn var
lengi sýnilegur. Þar fyrir utan var Baldur,
gamli barnaskólinn sem svo var kallaður
eftir að skólinn fluttist næstum suður að
kirkju 1908, stendur þar enn gegnt kirkju
og Gamlaspítala. Baldur var timburhús,
reist 1881. Gísli Guðmundsson keypti
það þegar skólahaldi lauk þar og seldi
veitingar og jafnvel gistingu. Þetta hús
Baldur, Aðalgata 22, húsið
sem Haraldur keypti af Gísla
Guðmundssyni 1919 og
opnaði þar verslun.