Skagfirðingabók - 01.01.2016, Blaðsíða 37
KAUPMANNSHJÓNIN Á SAUÐÁRKRÓKI
37
1946, og þá snarfjölgaði farþegum.
Bjarni Haraldsson minnist ferðar með
Sigurði út í Haganesvík um 1940, en
þeir voru þrjá klukkutíma og fjörutíu
mínútur á leiðinni, vegurinn þeygi
góður. Fastar ferðir voru tvisvar í viku
sumartímann. Haraldur gerði einnig út
flutningabíl til að sækja vörur suður og
margir nýttu sér þá þjónustu, fyrirtæki
og einstaklingar. Bjarni stofnaði svo sitt
fyrirtæki á þeim grunni 1954; hafði þá
m.a. umboð fyrir Sanitas gosdrykki.
Flóabáturinn Drangur var í áætlunar-
ferðum frá Akureyri og vestur um, flutti
fólk og vörur og kom við á Dalvík,
Ólafsfirði, Siglufirði, Haganesvík og
Sauðárkróki, brá sér einnig út í Grímsey.
Verslun Haraldar þjónaði flóabátnum.
Öxnadalsheiði var langtímum saman
ófær á þessum árum og þá kom fólk
með Drangi til Sauðárkróks og komst
þaðan í áætlunarbíl fram í Varmahlíð og
áfram suður eða öfugt. Björn Daníelsson
segir frá því að hann kom norður með
rútu, beið síðan ásamt öðrum á Hótel
Villa Nova á Króknum eftir að Drangur
legði í hann norður. Einnig notfærði
fólk sér bátana hans Skafta í Nöf sem
m.a. fluttu mjólk frá Króknum og út í
Siglufjörð, jafnvel steypumöl þegar því
var að skipta. Til þess notaði hann stóra
pramma, líklega nótabáta af stærstu
gerð. Þeir lágu við hafnargarðinn og
Haraldur útvegaði bíla sem sturtuðu
malarhlassi niður í bátana sem Skafti
dró síðan út í Siglufjörð á bátum sínum
– sem voru fullir með fólk og mjólk og
annan varning. Öll þessi starfsemi jók
umferðina við verslunina. Það má því
ýkjulaust segja að búðin hafi öðrum
þræði verið eins konar umferðarmiðstöð
sem lifði með einhverju móti til 2006.
Rútubílar á grunni Bræðrabúðar, t.v. er hús
Haraldar og Guðrúnar, því næst trésmíða-
verkstæði Kaupfélagsins og sér í sláturhús
K.G. t.h. Bíllinn næst húsinu er Chevrolet,
árgerð ´41, F 7, því næst F 16, Chevrolet
´38, og loks F 2, Ford ´42 árgerð. Þessir
bílar eru með Siglufjarðarnúmer, vegna
þess að Baldvin Kristinsson, Baldi blúss sem
kallaður var, átti þá og gerði út, F 7 og F 16
keypi Baldvin af Bifreiðastöð Skagafjarðar.
Guðrún ásamt nöfnum sínum, Guðrúnu
Kristínu Guðfinnsdóttur t.v. og Guðrúnu
Ingibjörgu Bjarnadóttur.