Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2017, Page 139
138
ræðir sem miðar til þess að efla andleg yfirráð Gyðinga. Kenningar
Einsteins eru það sem eg hefi hér í huga, og bið eg að taka vel eftir
því, að ekki kalla eg þær kenningar fánýtar. En það er alveg víst,
að ekki duga þær til þess að skapa þá heimspeki sem þjáðu mann-
kyni er svo mikil nauðsyn á. Það er eftirtektarverð samkepni, sem á
þessum árum hefir átt sér stað milli Íslendingsins og Gyðingsins, og
er þar aðstaða ærið ólík. En þó mun það sýna sig, að íslenzk hugs-
un og nokkur kunnátta í jarðfræði, líffræði og sögu, verður drýgri
til að skapa hina sönnu heimspeki, heldur en stærðfræðissnild og
fólkættar fylgi hins fræga Gyðings (328).
Níðingslegur andsemítisminn er vitaskuld það fyrsta sem stingur lesand-
ann. Hér blasir við veigamikill þáttur í kenningum Helga, sem ekki verður
horft fram hjá þegar fjallað er um skrif hans, en í Nýal er ítrekað lögð áhersla
á þátt þjóðernisins og hins norræna í hinum nýju vísindum.83 Þannig full-
yrðir Helgi m.a. að á Íslandi búi „konungsætt mannkynsins, þó að úrkynj-
uð sé og torkennileg orðin“ (401) og undirstrikar í framhaldinu að „hlut-
verk íslensku þjóðarinnar“ sé „að rétta við hina arísku framsókn“, er feli í
sér lausnina á því „hversu gegnjúdskað hið hvíta mannkyn er orðið“ (439).
Loks stígur Helgi fram sem uppfylling á þeim spádómi Nostradamusar að
„konungborinn maður […] muni koma frá hinum ystu löndum“ og knýja
fram „umskifti í sögu mannkyns“, sem samkvæmt útreikningum Helga er
83 Jafn brýn og greining á kynþáttahyggju nýalsspekinnar er, liggur hún utan ramma
þessarar greinar. Í samhengi vestrænnar dulspeki væri mikilvægt að huga að
tengslum við aðrar kenningar á þeim vettvangi, sem hverfast um hugmyndir um hið
germanska. Nærtækt virðist að horfa til aríaspekinnar eða arísófíunnar í Vínarborg
og tengdra dulspekihreyfinga á þýsku málsvæði í þessu samhengi. Sterk andsemítísk
viðhorf koma fram í bréfaskrifum mágs Helga, Hans Krticzka von Jaden, og bent
hefur verið á að í eftirlátnum gögnum von Jadens má m.a. finna eintak af þjóðernis-
sinnaða guðspekitímaritinu Zum Licht, Wege nach Asgard. Sigrún Andrésdóttir,
„Íslandsvinir í Vín. Ævi og störf Austurríkismannanna Josefs Calasanz Poestion og
Hans Krticzka von Jaden“, Skírnir 184 (haust)/2010, bls. 380–409, hér einkum bls.
403; sjá einnig Nicholas Goodrick-Clarke, The Occult Roots of Nazism. Secret Aryan
Cults and the Influence on Nazi Ideology, New York: New York University Press,
2004 [1985], bls. 162. Kynþáttahyggja Helga sækir þó að öllum líkindum einnig í
aðrar áttir, enda voru slíkar kenningar fyrirferðarmiklar í evrópsku menningarlífi
á þessum tíma og gegndu m.a. veigamiklu hlutverki bæði í guðspeki og mannspeki
eða anþrópósófíu, sjá t.a.m. Helmut Zander, „Anthroposophische Rassentheorie.
Der Weltgeist auf dem Weg durch die Rassengeschichte“, Völkische Religion und
Krisen der Moderne. Entwürfe „arteigener“ Glaubenssysteme seit der Jahrhundertwende,
ritstj. Stefanie von Schnürbein og Justus H. Ulbricht, Würzburg: Königshausen
und Neumann, 2001, bls. 292–341.
BenediKt HjaRtaRSon