Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2017, Page 249
248
tíma að hafa notað orðasambandið „Britney fokking Spears“. Þetta þótti
Bjarna svo merkilegt að hann sá ástæðu til að skrá það á lista sína. Þá hafði
ég ekki mikið um það að segja en lýsti furðu minni á því að hann hefði sett
það á listann yfir höfuð, enda sérlega vafasamt hvort læra megi nokkuð af
þessu um nýtrúarhreyfingar. Mér þótti þetta aukaatriði en Guðna þykir
þetta svo mikilvægt að hann nefnir eina af svargreinum sínum eftir þessum
ummælum Þórðar. Skýring Guðna er þessi:65
Hvers vegna setur Bjarni þau þá á lista sinn? Skýringin er einföld.
„Britney fokkíng Spears“ er setning sem segir okkur eitthvað um
samskiptastíl og það er í raun undrunaratriði að Ásgeir Berg skuli
ekki koma auga á tilganginn. Setningin er t.d. ekki líkleg til að sjást
á vef Biskupsstofu eða á vef Alþingis, svo dæmi séu tekin – og erf-
itt væri að koma henni að í fræðilegri grein um poppmenningu 21.
aldar, eða í grein um trúarlífsfélagsfræði, nema þá í formi tilvitn-
unar.
Þetta er allt rétt hjá Guðna. En er það rétt að Bjarni hafi sett þetta á listann
til að segja lesandanum eitthvað um samskiptastíl? Ef svo er þá gerir hann
það ansi illa, því engin greining eða skýringar fylgja með. Þetta er sér-
staklega vandræðalegt í ljósi þeirrar bloggfærslu Þórðar þar sem þessi orð
voru látin falla.66 Færslan er nefnilega ákaflega persónuleg og talar Þórður
mjög einlæglega um líðan sína á þeim dögum sem hún var skrifuð en hún
hafði verið heldur bágborin. Þórður hefur færslu sína á þessum orðum:67
Það er með eindæmum hvað maður getur verið þungt haldinn í
efnaboðsútdeilaranum. Með ólíkíndum. Í alla þessa viku, og í raun
mun meira til, hef ég meira og minna verið í alveg hreint mögnuðu
og sérstaklega niðurdrepandi skapi. Bitur, leiður og dapur, óhress og
óhamingjusamur.
65 Guðni Elísson, „Britney fokkíng Spears“, bls. 23.
66 Þórður ingvarsson, „Óviðjafnanlega lýsandi titill á pistli dagsins“, Blog Dodd:
Vefbók Anarkóbóhedónistans, 20. september 2007, skoðað 15. september 2015
af http://blogdodd.bloggar.is/blogg/265676/Ovidjafnalega_lysandi_titill_a_pistli_
dagsins.
67 Sama rit.
ÁSGeiR BeRG MattHíaSSon