Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Síða 46

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Síða 46
H a l l g r í m u r H e l g a s o n 46 TMM 2012 · 1 (úff), Tíminn og vatnið er „fyrsta atómljóðið“ (kannski ekki alveg), og Dalalíf er einn kaffiuppáhellingur út í gegn (kjaftæði). Körlunum hefur þótt þetta fyndið á sínum tíma. Þetta var þægileg afgreiðsla á bók sem þeir sáu konurnar drekka í sig, á meðan þeir sjálfir lágu í atómljóðum og ættum hrúta. Það er svo aftur rannsóknarefni hversvegna Íslendingum er svo gjarnt að niðra hlutum með því að tengja þá við kaffi. Því hér erum við að tala um ansi ramma hefð, sem vörðuð er orðum eins og „kaffibollaþvaður“ (eins og sagt var um Dalalíf) „Kaffibrúsakarlarnir“, „kaffihúsaspekingar“ og nú síðast „lattelepjandi lopatreflar í 101“… Já, hvað er þetta með kaffið? Alvöru karlmenn drekka bjór og brennivín. Kaffi er fyrir kellingar. Kellingabækur eru fullar af kaffi. Alvöru karlmenn lesa ekki bækur, og alls ekki langar bækur. Þeir eru búnir að drekka svo mikið að athyglis- gáfan dregur ekki lengra en í fjórar línur. Ferskeytlan er þeirra form. Þeir kasta fram vísum, keyra á jöklum, skjóta hreindýr og sökkva landi. Kona fer undir vatn. Vatn til að þvo í þvottinn, vatn til að vaska upp, vatn til að hita í kaffi. Og vatn til vinna úr rafmagn. Hve táknrænt er það ekki að sögusvið Dala- lífs, átthagar Guðrúnar frá Lundi, Stífla í Fljótum, skuli hafa horfið undir uppistöðulón. Fegursta dal landsins var fórnað til að framleiða fegursta rafmagn landsins. Rétt áður en bókin kom út. Og Þóra í Hvammi, Jón á Nautaflötum, Lísibet og Borghildur, Lína, Þórður og Ketilríður urðu að neðansjávarverum í íslenskum bókmenntum. Ósýnilegar á yfirborðinu en svamlandi um í þjóðardjúpinu, eins og ódrepandi fiskar. Guðrún Baldvina Einarsdóttir fæddist árið 1887 á Lundi í Fljótum og fór snemma undir vatn. Eins og allar konur af hennar kynslóð, mennt- aðar og ómenntaðar, var hún kaffærð af bústýringum og barneignum. Þrátt fyrir að hafa skrifað frá fermingu brenndi hún allt „hand- ritadraslið“ daginn sem hún gifti sig, 23 ára gömul. Og sökkti sér í lífið. Ekki fyrr en seint og um síðir kom upp úr því kafi bók. Fyrsta bindi Dalalífs kom út árið 1946. Er það ekki ótrúlegt? Ímyndum okkur að sem unglingur hafi Guðrún frá Lundi verið fengin til að passa sveinbarn að nafni Halldór Guðjónsson — síðar Kiljan og Laxness. Hún er fimmtán ára þegar sá drengur fæðist. Þegar hann er fimm ára er hún tvítug. Þegar hann heldur út í heiminn verðandi skáld er hún þrítug þriggja barna móðir. Þegar hann er búinn að skrifa Vefarann, Sjálfstætt fólk, Sölku Völku, Heimsljós, Íslandsklukkuna og Atómstöðina … þá byrjar sú gamla loks að gefa út bækur. Og skrifar þó jafnmargar blaðsíður og hann, áður en yfir lýkur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.