Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Side 108

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Side 108
D ó m a r u m b æ k u r 108 TMM 2012 · 1 finna í eigu ættingja þeirra í Danmörku og Svíþjóð; að því ég best veit hefur aldrei verið reynt að fá þau hingað til sýninga. Auk þess er kirfilega órannsak- aður hlutur margra annarra myndlistar- manna, þannig að enn búum við ekki yfir fullnægjandi upplýsingum um mörg tímabil íslenskrar listasögu. Formgerð listasögunnar Nú er líkast til freistandi að setja ein- hvers konar jafnaðarmerki milli þess fjársveltis sem íslenskar myndlistar- stofnanir hafa löngum búið við og þeirr- ar ávöntunar sem hér er minnst á. Ég fullyrði hins vegar að þessar stofnanir hafa ævinlega haft aðgang að fjármagni til skipulegra rannsókna og sýninga á verkum helstu listamanna og veglegrar útgáfustarfsemi, ýmist einar og sér eða með fulltingi sjóða og einstaklinga. Hængurinn er sá að það hefur aldrei verið talið til forgangsverkefna á þeim listastofnunum sem ég þekki til að stoppa í götin, draga lítt þekkta lista- menn fram í dagsljósið eða varpa nýju ljósi á þá listamenn sem við þykjumst þekkja til hlítar. Í staðinn hafa menn æ ofan í æ notað fyrirliggjandi fjármagn til að setja upp málamyndasýningar með lágmarksupplýsingum á verkum listamanna sem þegar hafa hlotið umtalsverða athygli. Eða þá að efnt hefur verið til „konseptsýninga“, þar sem megináherslan er lögð á að finna verkum stað innan vébanda einhvers konar heimatilbúinnar eða aðfenginnar hugmyndafræði fremur en að auka þekkingu á tilurð þeirra og þróun í íslensku samhengi. Engu að síður hefur ýmislegt verið unnið til hagsbóta fyrir íslenska lista- sögu á síðastliðnum áratugum, og ber þar fyrst að nefna listasögu Björns Th. Með hliðsjón af þeirri heimildafátækt sem hann stóð frammi fyrir við upphaf söguritunar sinnar og hann lýsir hér í upphafi, – er óhætt að segja að afrakst- urinn sé menningarlegt stórvirki. List- sýn Björns er heildstæð og persónuleg. Sömuleiðis eru markmið hans skýr: að gera framvindu myndlistarinnar í land- inu aðgengilega almenningi og leita um leið svara við spurningum um einkenni íslenskrar myndlistar á hverjum tíma, tengsl hennar við alþjóðlega listasögu og íslenska menningu. Frá Birni er komin sú „formgerð“ íslenskrar listasögu sem enn er stuðst við í stórum dráttum, jafnvel í þeirri sögu sem nú hefur verið gefið út í fimm bindum: forsagan á 19 öld, svo koma frumherjarnir, önnur kynslóð þróar áfram landslagsmálverk frumherjanna, þorpsmálverkið bætist við og þróast smám saman í átt til abstraktbyltingar á sjötta áratugnum. Myndefnið í listasögu Björns hafa síðari tíma listfræðingar einnig haft til hliðsjónar í listsöguritun sinni allar götur síðan, sjá t.d. afmælisrit Listasafns Íslands frá 1985 og yfirlitsrit- ið Í Deiglunni sem safnið gaf út 1994. Helstu kostir Björns sem söguritara, fyrir utan stílsnilld sem gerir listaverk ljóslifandi og sagnfræði auðlæsilega, var annars vegar sú staðreynd að hann var samtímamaður flestra þeirra listamanna sem hann fjallar um, þekkti marga þeirra persónulega og var tíður gestur á vinnustofum þeirra; skrif hans hafa því verulegt heimildagildi. Björn leggur sig einnig fram um að fjalla af sanngirni um myndlistarmenn, jafnvel þá sem hann hafði litla velþóknun á. Hann tíundar skilmerkilega helstu kosti þeirra, oft í löngu máli, og tilgreinir ágalla þeirra síðan í einni eða tveimur málsgreinum í niðurlagi. Þótt hægur vandi hefði verið að færa listasögu Björn til nútímalegra horfs, leiðrétta villur, prenta myndefni upp á nýtt í réttum litum og bæta við efni sem
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.