Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Page 125

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Page 125
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2012 · 1 125 (74) að þar sé um að ræða viðbrögð hans við setningu í litlum þætti í bók Thors, Andlit í spegli dropans. En þar er talað um að „þá lygi sem er kjarni kynhverf- ingalífsins þar sem náttúran hefur logið að sjálfri sér“.7 Vel getur verið að lítils- virðingar um annað skáld sömu kyn- slóðar, Hannes Pétursson, (52) eigi sér helst forsendu í aðdáun Hannesar á skáldinu Rilke, sem Þórður telur „ómerkilegasta gelding heimsbók- menntanna“8 – meira þurfti ekki til. Hliðargrein af reiðilestri yfir þeim sem ekki lifa í merkri list og kynlífi er ómæld fyrirlitning á brennivínsdýrkun sem vitanlega hefur verið meiri en nóg hjá löndum Þórðar, menntamönnum sem öðrum. Að taka þennan „ómerki- legasta fátækradrykk veraldar“ fram yfir ágætar bækur og tónlist er höfuðsynd sem ekki er fyrirgefin. Skondin er frá- sögn Þórðar af því þegar einhver kunn- ingi hans týndi öðru bindi „bestu bókar heims“ sem hann hafði lánað honum og Þórður lét hann þá borga morð fjár í skaðabætur með mánaðarlegum afborg- unum. Hann bætir við: „Mikið er gaman að geta gefið íslenskum mennta- mönnum, skáldum og rithöfundum utan undir með því að virða eina bók hærra en eina brennivínsflösku“ (43). Ræða Þórðar er öll já já og nei nei og hún miðast öll við viðhorf og þarfir hans sjálfs. Eins og lasti getur hann hlaðið á menn ómældu lofi ef hann þykist sjá í þeim samherja um einhverja grein síns fagnaðarerindis. Þeir menn eru óvið- jafnan leg mikilmenni eins og hann jafn- an kallar æskuvin sinn Erlend í Unuhúsi og bætir því við að hann „sé ekki þess verðugur að nefna nafn þessa mikla göfug mennis“ (217). Sumir fá stundum að heita snillingar en stundum eitthvað allt annað eins og Halldór Laxness. Frá öllu eru frávik: hvað sem öllu níði um trúmenn líður átti Þórður til að játa að sumir menn hafi lifað stórmerkilegu trúarlífi. Hann viðurkenndi fúslega að ungur ástvinur hans sem veslaðist upp úr holdsveiki hafi sannarlega þurft á trú á annan heim að halda: „mikið hafði mað- urinn þjáðst“.9 Íslenskir menntamenn voru rolur og fábjánar – en þó ekki Jón prófessor Helgason eða Þorsteinn Gísla- son. Af hverju Þorsteinn? – Jú, hann „sagði sálmaskáldunum að éta skít“ (93) – og var þar með orðinn bandamaður Þórðar. Af hverju lætur hann Árna Berg- mann sleppa við skammir fyrir það að umgangast allskonar menntamanna- drull? Vegna þess að hann var svo „fínn mannþekkjari“ að hann „var fljótur að átta sig á yfirburðum hins gáfaða og göf- uga Kristjáns Helgasonar“ (204). Með öðum orðum: reyndist besta vini Þórðar vel. Vel á minnst Kristján: allir fá í texta Þórðar skarpa skömm fyrir drykkjuskap, nema einmitt Kristján, Kristján er aldrei „fyllibytta“, hann hefur barasta „mann- lega bresti“ (204). Það er vafalaust rétt sem Hjálmar Sveinsson segir í eftirmála, að þá heift sem einkennir alla málsvörn Þórðar fyrir sínu lífi má rekja til „bælingar kynhneigðarinnar sem hann fann sterkt fyrir í íslensku samfélagi“ (221). Það var eins og fyrr var nefnt ekkert gamanmál að vera hommi í litlu og fordómafullu samfélagi og rökrétt að líta svo á að reiðilestur Þórðar sé hefnd hommans fyrir ótal margt sem á hlut hans líka hefur verið gert. Ofsinn í karlinum er alloft fyndinn, einkum ef visst sjálfsháð er látið fylgja með. En fordæmingarþul- an verður þegar til lengdar lætur stagl- söm og um leið skelfing fyrirferðarmikil í textanum. Mér finnst allt þetta gera þá sjálfsmynd sem karlinn skilur eftir sig fátæklegri og einhæfari en efni stóðu þó til. Og oftar en ekki særir hann sárasak- lausa lifendur og dauða með þeim hætti að engin ástæða er til að afsaka það.10
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.