Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2012, Síða 14

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2012, Síða 14
Á r m a n n J a k o b s s o n 14 TMM 2012 · 2 kunnum þau. Málsatvik þekkja sjálfsagt allir: harðvítugar deilur heiðinna og kristinna standa yfir á alþingi á Þingvöllum (eflaust keimlíkar nýlegum þingumræðum um Icesave­skuldina og afgreiðslu hennar) þegar maður kemur ríðandi á stökki og segir frá eldsumbrotum í Ölfusi sem ógni bústað eins kristna goðans, föður Skapta Þóroddssonar sem kemur næstum jafn víða fyrir í fornum textum og Snorri – en Skapti var sá þjóðveldismaður sem lengst var lögsögumaður og hlaut raunar starfið í upphafi sakir þess að forveri hans varð of hás til að gegna því; þetta var á munnmenntaöld og raddbönd jafn nauðsynleg lögsögumanni og orkudeplarnir eru íslenskum háskólamönnum nútímans. Heiðnir menn hafa þá á orði að engin furða sé að goðin reiðist ýmsu því sem sagt hafi verið á þingi. Samkvæmt Kristni sögu (frá síðari hluta 13. aldar) segir þá Snorri goði: Um hvað reiddusk guðin þá er hér brann hraunið er nú stöndu vér á? en einni öld síðar, í Kristni þætti Flateyjarbókar hljóma orð hans þannig: Hverju voru guðin reið þá er hér brann jörðin sem nú stöndum vér? Þannig ríkir engin sérstök samstaða á miðöldum um hvað Snorri nákvæm­ lega sagði þennan dag á Þingvöllum en hitt er óumdeilt að með svarinu stingur hann upp í heiðna menn. Ekki er heldur umdeilt að Íslendingar hafa löngum kunnað að meta þessa hnyttni, ekki aðeins í miðju gosi árið 2010 heldur einnig árið 1920 þegar Matthías Þórðarson þjóðminjavörður víkur að orðum Snorra á svofelldan hátt: Orð hans á kristnitökuþinginu um hraunið og reiði goðanna hafa nú flogið um landið og jafnvel út yfir hafið um níu alda skeið, og virðast ekki að því komin enn að detta dauð niður. Engin miðaldaheimild sem tilfærir orðin skýrir hins vegar frekar hvernig eigi að túlka þau. Það blasir við að þessi retóríska spurning er fjarri því að vera jafn sakleysisleg og hún gæti hljómað en nákvæmlega hver broddurinn sé er ekki skýrt í miðaldaheimildum enda kannast allir sem með þær vinna við það að ritskýring er fremur sjaldgæf í textum þessa tíma og frásögnin lifir yfirleitt ein; þetta veldur jafnan nokkrum vanda þegar við viljum skilja hugmyndafræði samtímans út frá norrænum frásagnarheimildum. Það er til dæmis ekki alveg morgunljóst hvort Snorri skilji uppruna hraunsins á Þingvöllum jafn vel (eða illa) og við sem nú lifum, þó að þannig hafi þetta eflaust verið túlkað ofan í okkur flest. Á síðari öldum hafa menn verið ófeimnir við að sjá í Snorra goða mann líkan þeim sjálfum sem hæðist að hjátrú og einfeldni. Séra Gunnar Benediktsson skrifaði grein með titlinum Hverju reiddust goðin? í Tímarit Máls og menningar árið 1980 og tók orð Snorra sem úrvalsdæmi um „íslenska hugsun“ sem væri jarðbundin, íhugul og rökræn. Þorleifur Einars­ son gat Snorra einnig í ritinu Jarðfræði: Saga bergs og lands (sem út kom 1968) og kallaði orð hans „fyrstu jarðfræðiathugunina“ en þau orð eru raunar víða eignuð Sigurði Þórarinssyni jarðfræðingi sem, eins og margir vita, var ein helsta menningarhetja Íslendinga um miðbik 20. aldar og lengi enn, og eins og þjóðfræðin sýnir okkur draga slíkar menningarhetjur mjög
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.