Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Page 114

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Page 114
G u ð m u n d u r S . B r y n j ó l f s s o n 114 TMM 2015 · 3 þau á að heimurinn er manninum áskorun og í honum er að finna einskonar takmark, framtíðaraugnablikið: „Nú er hann loksins á leið út í hinn stóra heim sem hann hafði farið svo víða um hugförum.“48 Og hann hefur ekki aðeins látið sig dreyma dagdrauma, hann hefur „dulist samferðamönnum sínum“ og lifað „tvöföldu lífi“, hann hefur verið að skrifa. Þannig má segja að Thor fari að dæmi Frans frá Assisi. Hann varpar „öllu“ frá sér og sinnir köllun sinni. Borgaralegt vafstur er lagt til hliðar, Thor leggst í ferðalög og virðist láta sér fátt um finnast það borgaralega öryggi sem hann skilur eftir heima. Það er því ekki fjarri lagi, í ljósi tengslanna við hina gnóstísku hefð, að halda því fram að bæði Frans og Thor hafi tekið til sín, með sínum hætti, þau orð sem eignuð eru Frelsaranum í hinu gnóstíska Tómasarguðspjalli:49 „Hagið yður að hætti förumanna!“50 Ljóst er að eitthvað merkilegt gerist í hugskoti Thors frammi fyrir helgi heilags Frans. Hann reynir að koma því í orð sem þarna á sér stað og það gengur mun betur en frammi fyrir málverkum Rembrandts, enda skilur hann að hér er raunveruleg mystík: „Þarna er svo sterk mystik að enginn getur rofið hina helgu þögn.“ Þegar textinn er skoðaður í heild má greina togstreitu á milli þessarar mystíkur og raunheimsins. Thor kallar jafnvel fram þá sem ekki virða helgi staðarins og þar er það hin hugsunarlausa grimma veröld sem talar, hinn illi efnisheimur, fáfræðin. Ef skipulega er farið í gegnum textann kemur eftirfarandi í ljós: Helgin getur ekki verið meiri, farið er niður undir tvær kirkjur og inn í hvelfingu heilags Frans í litla kapellu „þar sem þögnin ríkir, og enginn myndi tala þó þess hefði ekki verið óskað menn þegðu.“ Merkingaraukinn liggur í þögninni. En þarna liggur líka sagan, bæði persónusaga og saga hugmyndarinnar um æðra tilverusvið – og jafnvel þetta tilverusvið sjálft. Þarna „fannst kista hins helga manns“ og þar er nú „skrín“ hans og umhverfis altarið eru jarð- neskar „leifar fylgismanna“ heilags Frans. Yfir þessum stað hvílir helgiblær, ára sögunnar. Áran er á svipuðum slóðum í fræðum Walters Benjamin og sagan, mann- kynssagan. Hún verður til í samræðu tíma og rúms: „Heilaspuni í tíma og rúmi: Einstæð sýn í fjarska, hversu nálægt sem það sem horft er á kann að vera.“51 Í upplifun listarinnar og skynjun árunnar er sótt til fyrri tíðar, í guð- fræði listarinnar, en þar er mystík sem ekki verður skilin nema í samhengi við gildi þess að skoða og dást að. Hvort tveggja á við þarna í helgidómi Frans frá Assisi. Þá andrá sem maður lifir þegar maður nær að fanga áruna, mætti því sjá sem einskonar messíanskt augnablik er manni berst úr einhverri fjarvídd fortíðarinnar. Eitthvert slíkt augnablik er að finna í reynslu Thors á þessum helga stað. Það sem fyrir augu ber kallar á tilbeiðslu eða átrúnað. Þarna liggur ósvikið dýrkunargildi, svo enn sé vísað til Benjamins. Það verður fagurfræðilegur og guðfræðilegur samsláttur við skrín Frans frá Ass- isi. Og Thor Vilhjálmsson skilur það og þess vegna ávítar hann þá sem ekki
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.