Tímarit Máls og menningar - 01.09.2017, Blaðsíða 90
A l d a B j ö r k Va l d i m a r s d ó t t i r
90 TMM 2017 · 3
frásagnarinnar er fíkn Amöndu dregin skýrt fram: „Það er kunnara en frá
þurfi að segja að við viljum öll flýja. Ég flý alltaf inn í mína eftirlætisbók,
Hroka og hleypidóma.“19
Pamela Regis heldur því fram að Hroki og hleypidómar sé „besta ástar-
saga sem skrifuð hefur verið“. Skáldsagan sýni „fullkomið vald Austen á
greininni“,20 en því er ekki að neita að sagan hefur haft mótandi áhrif á
kvennamenningu nútímans. Hroki og hleypidómar er samanburðarverk bæði
fyrir ástarsöguna og skvísusöguna en glæpasagnadrottningin P.D. James
lýsti verkinu sem „Mills og Boon, skrifuðu af snill ingi“.21 Þá sprengingu sem
verður í Austen-tengdri menningu á síðustu tveimur áratugum má rekja til
sjónvarpsþáttaraðarinnar Hroki og hleypidómar frá 1995 þegar Colin Firth
gerði kvenþjóðina vitlausa í hlutverki sínu sem Darcy. Í kjölfarið komu út
mörg hundruð aðlaganir á Hroka og hleypidómum þar sem algengt þema er
Darcy þráhyggja kvenhetjunnar.
Herra Darcy er ein mikilvægasta fyrirmynd hinnar hrokafullu, valds-
mannslegu og viljasterku karlhetju ástarsögunnar ásamt persónunni Roc-
hester, úr skáldsögu Charlotte Brontë, Jane Eyre, en hann er jafnframt
myrkari hetja, ofbeldis- og ástríðufull, sem á erfitt með að temja skap sitt.
Í Romance and the Erotics of Property segir Jan Cohn frá því að söguþráður
vinsælla ástarsagna gangi út á kynferðislegt samband kvenhetju og karlhetju
og hefjist á því að pari sögunnar líki ekki vel við hvort annað. Ekki hjálpar
að kvenhetjan verður sér meðvituð um kynþokka karlhetjunnar. Það eru
erótísk viðbrögð sem vekja með henni ótta, miklu fremur en árásargirni og
hroki karlhetjunnar. Ógnin af karlinum gerir sigur kvenhetjunnar undir
sögulok sætari, en hún temur ofsafullt kynferði hans með hjálp ástarinnar.22
Cohn tekur þannig undir með mörgum ástarsagnahöfundum, því hún telur
sögurnar fagna sigri konunnar á hinum sterka karlmanni sem í lokin hefur
verið yfirbugaður. Konan endurskapar flagarann og gerir hann bæði að elsk-
huga og tryggum eiginmanni.23
Doreen Owens Malek tekur í sama streng í grein sinni „Mad, Bad and Dan-
gerous to Know“, en hún segir að fantasían í vinsælum ástarsögum gangi út á
að sterkur, drottnunar- og árásargjarn karlmaður gefi sig á vald konu. Þannig
sé baráttan milli kynjanna sett á svið og konan vinni alltaf sigur. Karlinn í
ástarsögum blótar kannski og stappar, hann afneitar kannski kvenhetjunni
og hafnar henni, eða reynist henni að minnsta kosti erfiður. En undir lokin
gefst hann upp af því að hann verður að gera hana að sinni. Því harðari sem
hann er, þeim mun betra. Þótt við viljum kannski blíðan, tilfinninganæman,
nútímalegan karlmann inn í líf okkar, á sá sem er í sögunum að vera hroka-
fullur, goðsagnakenndur stálnagli. Því forhertari sem hann er, þeim mun
sætari verður sigurinn þegar kvenhetjan knésetur hann.24
Herra Darcy í sögu Austen er óumræðilega ein af mikilvægustu fyrir-
myndum drambsömu og viljastyrku karlhetjunnar, þó að hann sé ekki jafn
hættulegur og hún er gjarnan. Nú hefur verið reynt að ráða bót á þessu