Þjóðarbúskapurinn - 01.08.1983, Page 56
54
miðað við fyrra ár. Á fyrri helmingi þessa árs virðist verðlag útfluttra
sjávarafurða reyndar hafa verið U/2% lægra en meðalverðið í fyrra.
Um iðnaðarútflutning gegnir öðru máli á þessu ári. Álverð er talið munu
verða að meðaltali allt að 30% hærra en í fyrra, eða 1 420-30 dollarar á tonn
samanborið við 1 100 á tonn í fyrra, en álverð hefur farið hækkandi á
heimsmarkaði að undanförnu. Kísiljárn er talið munu hækka um 20% talið í
norskum krónum, sem felur í sér un. 10% hækkun í dollurum. Á hinn bóginn er
gert ráð fyrir, að meðalverð annarrar útflutningsvöru lækki nokkuð í dollurum.
í spánni um innflutningsverð var gert ráð fyrir 12-13% lækkun olíuverðs í
dollurum. Innflutningstölur fyrri árshelmings svo og upplýsingar um verðskrán-
ingu að undanförnu benda til þess, að lækkunin verði minni. Annað innflutn-
ingsverð, sem er ákvarðað í Evrópugjaldeyri að verulegu leyti en minna í
dollurum, öfugt við útflutninginn, var í spánni talið mundu hækka um 3% miðað
við meðalgengi allra mynta, en líklegt er, að það hækki minna eftir fyrirliggjandi
tölum að dæma.
Sem fyrr segir hefur enn ekki verið talin ástæða til að breyta meginniðurstöð-
um fyrri viðskiptakjaraspár um 3% bata á árinu og reiknað er með, að
viðskiptakjör í þjónustuviðskiptum batni um svipað hlutfall og í vöruviðskiptum.
Með hliðsjón af tölum fyrri árshelmings er spáin því greinilega gerð af varkárni.
Útflutningur.
Sem fyrr segir varð vöruframleiðsla til útflutnings árið 1982 liðlega 10% minni
að vöxtum en árið áður og stafaði samdrátturinn einkum af aflabresti, þótt fleira
kæmi til. Vöruútflutningurinn minnkaði þó mun meira, eða um 17%, vegna
markaðserfiðleika erlendis. Gætti þeirra sérstaklega í skreiðarútflutningi til
Nígeríu vegna efnahagsþrenginga þar í landi, einkum verðfalls á olíuútflutningi,
sem leiddu til takmarkana á innflutningi. Ennfremur dróst útflutningur á áli
Tafla 22. Útflutningsframleiðsla og útflutningur 1981-1983.
Milljónir króna fob
á verðlagi hvors árs Magnbrcytingar frá fyrra ári, %
Bráðab. Bráðab. Spá
Útflutningsframleiðsla: 1981 1982 1981 1982 1983
Sjávarafurðir......................................... 5 254 7 267 1,5 -12,7 -4,0
Á1 ............................................. 748 1 042 2,0 1,1 3,7
Kísiljárn ............................................... 128 238 18,0 24,2 22,8
Annað ................................................... 670 998 -6,6 -8,5 9,4
Samtals............................................... 6 800 9 545 1,0 -10,2 -1,1
Birgðabreytingar1) ............................. —264 —1 066
Vöruútflutningur...................................... 6 536 8 479 —1,2 —17,1 13,2
Þjónustuútflutningur ................................. 2 351 4 584 12,1 14,5 0,0
Útflutningur vöru og þjónustu ........................ 8 887 13 063 1,9 -9,0 8,6
1) Aukning birgða