Þjóðarbúskapurinn - 01.08.1983, Page 69
67
Tafla 31. Breytingar landsframleiðslu og þjóðarframleiðslu 1979—19821).
1979 % 1980 % 1981 % 1982 %
Landsframleiðsla 4,1 4,1 2,2 -1,3
Þjóðarframleiðsla 4,4 3,9 1,6 -2,0
1) Magnbreytingar samkvæmt ráðstöfunaruppgjöri þjóðhagsreikninga.
þær breytingar sem verða í umsvifum og framleiðslu hér innanlands. Spá um
breytingar framleiðslunnar á þennan mælikvarða sýnir um 4V2% samdrátt 1983.
Báðar þessar spár eru byggðar á svonefndu ráðstöfunaruppgjöri þjóðarbúskap-
arins. Þær fremur ófullkomnu vísbendingar, sem fyrir liggja um framleiðslu-
breytingar eftir atvinnugreinum, sýnast renna nokkrum stoðum undir lands-
framleiðsluspána, en þó virðist mat á horfum frá framleiðsluhlið benda til heldur
minni samdráttar í innlendri framleiðslustarfsemi á þessu ári en felst í þjóðhags-
spá, sem gerð er fyrst og fremst frá ráðstöfunarhlið.
Viðskiptakjör eru talin munu batna á þessu ári og gæti sá bati svarað til um
1V2% af þjóðarframleiðslu. Þegar tekið er tillit til þess er því spáð, að
þjóðartekjur minnki um 4V2% í heild, eða um 5V2% á mann. Þjóðartekjur á
mann hefðu samkvæmt því rýrnað um 9% á tveimur árum og yrðu á þessu ári
svipaðar eða ef til vill heldur meiri en á árinu 1976. Samdráttur þjóðartekna
reiknað á hvern vinnandi mann yrði heldur meiri, eða um 11% árin 1982 og
1983.