Þjóðarbúskapurinn

Eksemplar

Þjóðarbúskapurinn - 01.08.1983, Side 92

Þjóðarbúskapurinn - 01.08.1983, Side 92
90 Hinn 1. apríl kvað Kjaradómur upp úrskurði um sérkjarasamninga flestra aðildarfélaga BHM og sama dag kvað Kjaranefnd upp úrskurði um sérkjara- samninga nokkurra aðildarfélaga BSRB. Var hér einkum um að ræða flokkatil- færslur og breytingar á starfsaldursákvæðum. Maí. Framfærsluvísitalan í maíbyrjun reyndist 160 stig og nam hækkunin 10,87% á tímabilinu febrúar til maí. Niðurgreiðslur búvöru voru auknar um sem svarar 2,0% af framfærsluvísitölu. Lög nr. 19/1982 um sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Lögin kveða á um framlengingu fyrri ákvæða um þennan skatt fyrir árið 1982 og helst skatturinn óbreyttur, 1,4% af fasteignamatsverði. Lög nr. 25/1982 um tímabundið olíugjald til fiskiskipa; kveðið er á um að olíugjald, sem fiskkaupendur greiða útgerðarfyrirtækjum, skuli á árinu 1982 vera 7% miðað við fiskverð eins og það er ákveðið af Verðlagsráði sjávarútvegs- ins. Olíugjald kemur ekki til hlutaskipta eða aflaverðlauna. Ný reglugerð um tollafgreiðslugjald tók gildi (nr. 230/1982) þar sem meðal annars er kveðið á um, að aðföng til samkeppnisiðnaðar skuli vera undanþegin gjaldinu. Lög nr. 26/1982 um atvinnuréttindi útlendinga. Lögin kveða meðal annars á um að ekki þurfi að sækja um atvinnuleyfi fyrir danska, finnska, norska og sænska ríkisborgara, er dvalið hafa þrjú ár samfleytt eða lengur í landinu. Ríkisstjórninni var heimilað að semja um hækkun á hlutafé íslands í Alþjóðabankanum úr 22,2 milljónum bandaríkjadollara í allt að 68 milljónir bandaríkjadollara miðað við gullgengi dollara þann 1. júlí 1944 (lög nr. 32/1982). Vegna mun minni þorskafla togara fyrstu mánuði ársins en búist hafði verið við var með reglugerð nr. 234/1982 dregið úr takmörkunum á þorskveiðum skuttogara þannig að á tímabilinu 1. maí til 31. ágúst eru þorskveiðar bannaðar í 45 daga samtals, og þar af skal hvert skip láta af þorskveiðum í að minnsta kosti 25 daga á tímabilinu 1. júlí til 31. ágúst. Lög nr. 45/1982 um breyting á lögum um járnblendiverksmiðju í Hvalfirði. Með lögunum er ríkisstjórninni heimilað að auka hlutafjárframlag sitt til fyrirtækisins úr 13.2 í 19 milljónir dollara svo og að veita sjálfskuldarábyrgð á erlendu láni, er félagið tekur, allt að 6 milljónum dollara. Lög nr. 52/1982 um breyting á lögum nr. 56/1978 um verðlag, samkeppnis- hömlur og óréttmæta viðskiptahætti. Kveða lögin meðal annars á um að samkeppnisnefnd verði lögð niður og að Verðlagsráði sé heimilt að fella verðlagningu á vöru og þjónustu undan verðlagsákvæðum þegar samkeppni er að dómi ráðsins nægileg til að tryggja æskilega verðmyndun og sanngjarnt
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Þjóðarbúskapurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðarbúskapurinn
https://timarit.is/publication/1367

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.