Gripla - 2019, Síða 107
107
SVANHILDUR ó SKARSDóTTIR
og ÁrnI HEIMIr IngÓLfSSon
DýrLIngar og DagLEgt BrauÐ
í LANGADAL
Efni og samhengi í AM 461 12mo1
Inngangur
þau eru mörg, handritin sem geyma fjölskrúðugt efni og geta við
fyrstu sýn virst sundurleit og óreiðukennd. Fæst þeirra eru ítarskráð í
handritaskrám og það gerir rannsakendum erfiðara að öðlast yfirsýn um
efni þeirra og koma auga á einhvern þráð eða samnefnara sem tengir ólíka
þætti saman. Þó er það einmitt samspil hluta og heildar sem gerir þessi
handrit að sérlega heillandi viðfangsefni og býður heim spurningum um
tildrög þess að efninu var safnað saman á bók, um notkun bókarinnar og
um eigendur og umhverfi þeirra.2 í þessari grein verður hugað að lítilli bók
frá sextándu öld sem reynist geyma merkan vitnisburð um hversdagslegt
trúarlíf á íslandi undir lok kaþólsks siðar.
Handritið AM 461 12mo er kver í litlu broti sem telur nú 72 blöð. Það
hefur einhvern tíma verið efnismeira, því í það vantar blöð á nokkrum
stöðum. Mest munar væntanlega um dagatal (kalendarium) sem ætla má
að hafi verið heilt í handritinu. Af því eru nú aðeins leifar á blöðum 27 og
28. Blað 27 byrjar á 5. október og lýkur á 7. nóvember. Á milli blaðanna
vantar eitt blað og síðan byrjar blað 28 á 14. desember og nær til ársloka. út
1 Rannsókn þessi er hluti af verkefninu Hið hræranlega helgihald: Hefðir og samhengi Gregors-
söngs á Íslandi 1500–1700 sem nýtur styrks úr Rannsóknasjóði. Taka skal fram að engan
veginn er hægt að gera öllu efni handritsins skil í þessari grein. Unnið er að ítarlegri efn-
isskráningu sem verður aðgengileg á handrit.is. Höfundar þakka Giselu Attinger, Söruh
Baccianti, Margaret Cormack, Natöshu Fazlic, Guðbjörgu Kristjánsdóttur, Hjalta Snæ
Ægissyni, Daniel Saulnier og Kristoffer Vadum fyrir margvíslega aðstoð.
2 Guðrún Ingólfsdóttir hefur rannsakað handritasyrpur frá 18. öld og ræðir í bók sinni m.a.
um skilgreiningar á slíkum handritum og viðhorf til þeirra, sjá „Í hverri bók er manns-
andi.“ Handritasyrpur – bókmenning, þekking og sjálfsmynd karla og kvenna á 18. öld, Studia
Islandica 62 (Reykjavík: Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla íslands, 2011), 23–30.
Um skilgreiningarvandann sjá einnig Marilena Maniaci, „Miscellaneous Reflections on the
Complexity of Medieval Manuscripts,“ Collecting, Organizing and Transmitting Knowledge.
Miscellanies in Late Medieval Europe, ritstj. Sabrina Corbellini, Giovanna Murano og
Giacomo Signore, Bibliologia 49 (Turnhout: Brepols 2018), 11–22.
Gripla XXX (2019): 107–153