Gripla - 2019, Page 140
GRIPLA140
ymnizemus. Zima
antiquum expurga ipsius oraculo wite
mediatrix auxiliatrix reparatrix illuminatrix [adiutrix
veni viva reos genetrix omnipotentis].80
Jartein af tilurð antífónunnar er að finna í íslensku handriti frá um 1700,
AM 634 4to. Þar segir frá þýskum greifasyni sem sendur var til náms í
París og stundaði þar meira hégóma heimsins en listir klerkdómsins. Þegar
biskup nokkur í Þýskalandi andaðist var greifasonurinn kjörinn arftaki
hans og óttaðist að nú yrði fáfræði hans ljós öllum mönnum. Því hélt hann
í Maríukirkjuna, Notre Dame, fleygði sér grátandi fram á gólfið og birtist
honum þá María og lofaði öllu góðu. Svo segir í sögunni: „Eftir svo talað
líður drottningin brott að sýn, en hann vaknar og sprettur upp gæddur svo
mikilli gjöf heilags anda, að án allri dvöl diktar hann nýja antiphonam af
sancta Maria bæði í senn að orðum og hljóðum. Sú antiphona er svo fallin:
Aue beatissima ciuitas [...]“ og söng hann hana „svo hátt og hvellt að heyrir
um alla kirkjuna.“81 Er svo sagt að honum hafi farnast vel í sínum biskups-
dómi.
Tveir af þremur síðustu söngvum handritsins eru nefndir í Orðubók,
ólíkt þeim sem á undan eru. Sanctifica nos Domine (72r) er söngur fyrir
krossmessur og er í Orðubók nefndur við þrjár hátíðir, In inventione sancte
crucis, In exaltatione sancte crucis og Commemoratio de sancta cruce.82 Lagið
er hið sama og finna má í allmörgum erlendum heimildum.83 Textinn er
á þessa leið:
Sanctifica nos domine
signaculo sancte crucis
vt fiat nobis obstaculum
contra seua jacula inimicorum
defende nos domine per lignum sanctum
et per precium iusti sanguinis tui
in quo nos rede⟨misti. alleluia.⟩
80 F.J. Mone, Hymni Latini Medii Aevi 1–3 (Freiburg, 1853–55), 2:439.
81 Unger, Mariu saga 2:1040. Stafsetning hér færð til nútímahorfs.
82 Ordo Nidrosiensis Ecclesiae (Orðubók), útg. Lilli Gjerløw (ósló: Norsk historisk kjeldeskrift-
institutt, 1968), 340, 393, 414.
83 Það stendur til dæmis í handriti í Det kongelige bibliotek, GKS 3449 8vo VI (181v–182v);
Cantus-auðkennisnúmer 004744.