Milli mála - 2018, Síða 73
GUÐRÚN KRISTINSDÓTTIR-URFALINO
Milli mála 10/2018 73
stæki sem þá setti svip sinn á franskt samfélag í skugga borgara-
styrjaldarinnar sem háð var í Alsír á árunum 1991–2002.31 Leikritið
var nú látið gerast í Norður-Afríku. Tónlist, umgjörð og allir
búningar voru sóttir í arabíska hefð og Tartuffe orðinn íslamskur
öfgamaður. Sýningin varð umtöluð og lifði lengi í hugum fólks
sem listrænt andsvar við hryðjuverkum ársins 1995. Í viðtali við
franska tímaritið L’Express sagði Mnouchkine að ef hún hefði starfað í
suðurríkjum Bandaríkjanna, hefði hún sett á svið lútherska sértrúar-
söfnuði og ef hún hefði starfað í Póllandi, hefði hún beint sjónum
að kaþólsku kirkjunni.32 Veikleiki túlkunar Mnouchkine þótti þó
vera sá að Molière skrifaði persónu sína sem hræsnara eða loddara en
íslamskir öfgamenn höfðu á tíunda áratugnum alla jafna þá ímynd
að þeir væru heils hugar í trú sinni.33 Annað kom í ljós og því má til
sanns vegar færa að uppsetning Mnouchkine hafi haft spádómsgildi
á margan hátt.
Á sama tíma var Tartuffe settur upp í klassískri uppfærslu sviss-
neska leikstjórans Bennos Besson í Odéon-leikhúsinu í París. Í hans
huga var heimilisfaðirinn Orgon áhugaverðasta persóna leikritsins:
Ég hef tekið eftir því að ungt fólk er spennt fyrir Tartuffe, því hann er
persónugervingur hinnar fullkomnu sjálfhverfu. Orgon er veikur af
þessum manni og vírusinn sem sýkti hann gerði hann veikan af and-
félagslyndi. Í öllum sjúkdómum er vírusinn áhugaverður en þó er
sjúklingurinn enn áhugaverðari. Gleymum því ekki að Molière lék
hlutverk Orgons. Þó hafa allir stórleikarar aldarinnar kosið að leika
Tartuffe. Þegar ég sé nýfætt barn, hrífst ég af fullkominni sjálfhverfu
31 Alsír var frönsk nýlenda til ársins 1962 og því eru í Frakklandi margir íbúar af alsírskum uppruna.
Öfgahópurinn Groupe islamique armé (Íslamska herdeildin) frá Alsír hrinti af stað keðju hryðju-
verkaárása í Frakklandi síðari hluta árs 1995. Mesta mannfallið varð í hryðjuverkaárásinni sem
framin var í Saint-Michel-neðanjarðarlestarstöðinni í París þann 25. júlí 1995 en þar létust 8
manns og 117 særðust. Sjá Guy Pervillé, „Vingt ans après 1995: les attentats de Paris, Lyon et
Lille reconsidérés“, Le Figaro, 24. júlí 2015, http://www.lefigaro.fr/histoire/2015/07/24/26001-
20150724ARTFIG00066-vingt-ans-apres-1995-les-attentats-de-paris-lyon-et-lille-reconsideres.
php [sótt 19. september 2018].
32 Véronique Jacob, „À chacun son Tartuffe“, L’Express, 12. október 1995, https://www.lexpress.fr/
informations/a-chacun-son-tartuffe_610166.html [sótt 19. september 2018].
33 Institut national de l’audiovisuel, FR3 SOIR3, „Tartuffe de Molière, mis en scène par Ariane
Mnouchkine au Festival d’Avignon“, 9. júlí 1995, https://fresques.ina.fr/en-scenes/fiche-media/
Scenes00280/tartuffe-de-moliere-mis-en-scene-par-ariane-mnouchkine-au-festival-d-avignon.
html [sótt 19. september 2018].