Milli mála - 2018, Síða 94
NÆRVERA OG TÚLKUN ÞÝÐANDANS
94 Milli mála 10/2018
síður að lengd, í fjórðu útgáfunni átta síður, og í báðum tilvikum
er hann undirritaður „J. C. Poestion“. Það er loks á eftir þessum
skrifum þýðandans sem hinn eiginlegi megintexti hefst, þ.e.a.s.
þýðingin á Pilti og stúlku. En hér kemst lesandinn ekki heldur hjá
því að finna sífellt fyrir nærveru þýðandans, þar sem hann hefur
bætt við fjölda neðan- og aftanmálsgreina. Í útgáfunni frá 1883
má sjá 56 aftanmálsgreinar með skýringum þýðanda en í útgáfunni
frá 1900 eru þær orðnar 91 talsins. Einnig eru í textanum stöku
neðanmálsgreinar. Jafnvel yfirborðskennd fyrsta skoðun á þessum
mismunandi útgáfum leiðir í ljós að Poestion fjölgaði hliðartextum
sínum með hverri nýrri útgáfu og lengdi þá.
Í samanburði við frumtextann breyttist einnig ytra form megin-
textans eða þýdda textans. Þýðingunni var skipt upp í 38 kafla
og samsvarandi yfirskriftum bætt við, t.d. „Achtunddreißigstes
Kapitel“ („Þrítugasti og áttundi kafli“). Í íslensku frumútgáfunum
er engin slík skipting. Þar sem þessa kaflaskiptingu má sjá í út-
gáfum mismunandi forlaga, má draga þá ályktun að hún sé frekar
upprunnin hjá þýðandanum en forlaginu.
Í Reclam-útgáfunum fylgir viðauki í kjölfar megintextans með
tveggja blaðsíðna yfirliti yfir „Verk og þýðingar J.C. Poestion“. Ekki
er þar um að ræða aðrar útgáfur hjá sama forlagi eða auglýsingar
forlagsins, heldur lista yfir frumsamin verk Poestions og þýðingar
hans. Það er tvímælalaust óvenjulegt að önnur verk þýðandans,
frekar en höfundarins, séu tilgreind í lok útgáfu. Á listanum má
finna málvísindarit og landafræðirit, kennslubækur í málfræði,
þýðingar úr íslensku, dönsku og norsku og fleira. Aftast í bókinni
er svo tveggja blaðsíðna listi yfir Reclam-bækur, þ.e.a.s. auglýsing
frá forlaginu. Reclam-forlagið hafði þá sérhæft sig í útgáfu sígildra
verka sem það er enn þann dag í dag þekkt fyrir. Um er að ræða
bækur smáar í sniðum sem eru ódýrar og ná mikilli dreifingu. Á
útgáfulista Reclam fyrir árið 1884 voru Jüngling und Mädchen eftir
Jón Thoroddsen (nr. 2226 og 2227) í næsta nágrenni við Heinrich
Heine (nr. 2221, Die Harzreise) og Jules Verne (nr. 2229, Die Kinder
des Kapitän Grant).
Skoðun á öðrum útgefnum þýðingum Poestions sýnir að hann
notaðist almennt mikið við hliðartexta, svo sem tileinkanir, for-
mála, innganga, neðanmálsgreinar, aftanmálsgreinar og eftirmála. Í