Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1970, Page 100
1970
— 98
VII. Slvsfarir.
A. Slys.
Slysfaradauði og sjálfsmorð síðasta áratug teljast sem hér segir:
1961 1962 1963 1964 1965 1966 1967 1968 1969 1970
Slysadauði 86 86 112 104 109 100 99 100 97 127
Sjálfsmorð 19 17 15 18 22 37 30 15 20 27
Rvík. Á slysavarðstofu Borgarspítalans komu á þessu ári til fyrstu
aðgerðar, 21940 sjúklingar, 14025 karlar og 7915 konur. Sjálfsmorð
voru 7. Banaslys urðu alls 47 á árinu. Dauðsföll af völdum eitrana
voru 10. Umferðarbanaslys urðu 8. 17 banaslys má rekja til ölvunar.
Álafoss. Tvö sjálfsmorð á árinu. Dauðaslys varð nálægt Eyrarkoti
í Kjós, er bifreið ók út af veginum.
Kleppjárnsreykja. Mikið er um slys hér, og yrði langt mál að tíunda
öil beinbrot og þaðan af alvarlegri slys. Umferðarslysin eru stór liður.
Suðureyrar. Lítið var um slysfarir hér á árinu. Engin slys munu hafa
orðið, sem alvarleg geta talizt.
Grenivíkur Nokkuð um minni háttar slys.
Norður-Egilsstaða. Slys urðu ekki mörg á árinu og fá alvarleg.
Djúpavogs. Engin meiri háttar slys urðu.
Selfoss. Slysfarir voru ekki meiri en árið áður. Mikið er þó um
minniháttar slysfarir í sambandi við skemmtistaði og ölvun. Eru lang-
flest slysanna tengd ölvun og skemmtunum á einhvern hátt. Mikið er
um það að yngra fólk af stórborgarsvæði Rvíkur sæki skemmtanir aust-
ur yfir fjall, og eru slysfarir miklar á þessu fólki, en lögreglan sækir
með þetta fólk til Sjúkrahúss Selfoss.
B. Slysavarnir.
Vr Árbók Slysavarnafélags Islands.
Á árinu fórust eða löskuðust 11 skip. Sjóslys og drukknanir voru 35,
banaslys í umferð 31, flugslys 5 og banaslys af ýmsum orsökum 34.
Ur lífsháska af ýmsum ástæðum var bjargað 108 manns. Tekjur fé-
lagsins námu kr. 9514644,91.
C. Mannskaðarannsóknir og önnur réttarlæknisstörf.
Engin skýrsla barst frá Rannsóknarstofu Háskólans við Barónsstíg
fyrir þetta ár.
Rvík. Gerðar voru 144 réttarkrufningar á árinu.