Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1970, Blaðsíða 152
1970
— 150
bóma brotnaði og lenti í höfði hans. Hann var fyrst fluttur til sjúkra-
hússins í......en síðar til Reykjavíkur, og var þar til meðferðar hjá
læknunum .... augnlækni og .... lækni, og það liggja fyrir vottorð
frá þeim báðum um áverka og meðferð. Vottorð þeirra eru svohljóðandi:
Vottorð .... [hins síðarnefnda], dags. 20. janúar 1966:
„Vottorð vegna P. S-sonar, f..... 1935,...........firði.
Hr. P. S-son, f..... 1935, til heimilis ...., ... .firði, hefur verið
hjá mér til rannsóknar og meðferðar nokkrum sinnum vegna afleið-
inga höfuðáverka, er hann hlaut að sögn, er „bóma“ um 50 kg að þyngd
slóst í höfuðið á honum, er hann var við vinnu um borð í m.b.....hinn
24. apríl 1965. Mun „bóman“ hafa komið á vinstra gagnauga og enni.
Féll P. strax á dekkið, missti meðvitund nokkra stund. Að sögn stóð
hann fljótlega upp eftir slysið, en féll svo strax niður aftur. Var hann
fluttur í land og lagður í Sjúkrahús ...., þar sem hann lá í tvo sólar-
hringa. Fór hann síðan þaðan heim til sín, þar sem hann var svo rúm-
liggjandi í 10 daga. Treysti hann sér ekki til að vera á fótum vegna
mikils höfuðverkjar og svima, sem gerði vart við sig strax eftir slysið
og var nánast stöðugur fyrstu 10 dagana, en fór svó smáminnkahdi
næstu daga við hvíldina, þannig að hann fór að vinna aftur um 3 vik-
um eftir slysið. Versnuðu þessi einkenni strax, er hann reyndi eitt-
hvað á sig, svo hann varð að hætta allri vinnu. Samtímis því tók hann
eftir því, að hann sá tvöfalt, og mikil þokusýn var á vinstra auga, en
borið hafði nokkuð á því, allt frá því hann slasaðist. Höfuðverkurinn,
sem enn er töluverður, hefir allt frá því P. slasaðist verið viðloðandi,
en versnað mjög við alla áreynslu og þreytu. Sama er að segja um
svimatilfinninguna og kvíðann. Heldur telur hann þó þessi einkenni
minni nú en þau voru fyrstu mánuðina eftir áverkann. Þokusýnina á
vinstra auga telur hann sízt betri nú en fyrst eftir slysið. Vegna áður-
nefndra óþæginda hefir vinnugeta P. verið mjög lítil að sögn, síðan
hann slasaðist. Hefir hann þó tvívegis reynt að taka upp fyrri störf við
sjómennsku, en orðið að hætta því vegna þess, hversu óþægindin
versnuðu við það. Hefir hann aðeins getað unnið að undanförnu við
létta íhlaupavinnu.
Ályktun: Hér er um að ræða 30 ára gamlan mann, sem slasast við
vinnu sína, fær slæmt höfuðhögg með þeim afleiðingum, að hann hefur
fengið sköddun á sjóntaug vinstra auga, þannig að augað er svo til
blint. Auk þess hefur hann fengið sköddun á vöðvum augnloks og hef-
ur nokkur einkenni um heilahristing. Vinstra auga er svo til blint, og
er talið, að það ástand sé varanlegt. Hins vegar er talið líklegt, að nokk-
uð af þeim einkennum, sem stafa frá heilahristingi, muni batna.
Þessi maður hefur áður fengið bætur vegna vinnuslyss, er hann varð
fyrir 14. marz 1960, og var honum þá metin varanleg örorka 15%.