Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1970, Blaðsíða 117
— 115 —
1970
Frá 20 sjúklingum voru send sýni vegna gruns um viral meningitis.
Sýni þessi dreifðust nokkuð jafnt yfir árið og komu öll af sjúkrahúsum
■ Reykjavík. Rannsóknir á þessum sýnum báru ekki árangur. Send
voru sýni frá sjö sjúklingum með bráða pericarditis. I blóðvatni eins
þeirra mældist sextánfölcf hækkun á mótefnum fyrir Coxsackie B5
veiru, en rannsóknir á sýnum frá sex sjúklingum með bráða peri-
carditis og einum með gamla fibrosis pericardii reyndust neikvæðar.
Rannsóknir á sýnum frá 10 sjúklingum með einhvers konar útbrot
báru ekki annan árangur en þann, að frá einu stálpuðu barni með út-
brot, sem líktust mislingum, ræktaðist RS veira. Hún er ekki viður-
kennd orsök að slíkum útbrotum og hefur kannske vaxið sem slæð-
mgur í sýninu, en er annars náskyld mislingaveiru. Rannsóknir á
Uiótefnum fyrir rauðum hundum voru ekki komnar í gang árið 1970,
°g er því ekki útilokað, að þeir hafi valdið einhverju af þessum út-
brotum. Sýnin, sem hér um ræðir, voru þó jafndreifð yfir árið, og ekki
líklegt að faraldur væri að byrja.
Ef íitið er á niðurstöður rannsókna á sýnum frá sjúklingum með
uieningitis, pericarditis og útbrot, er ekki útilokað, að á árinu 1970
hafi komið hér enteroveira, sem vex ekki í þeim frumum, sem til voru
ú Keldum. Ber brýna nauðsyn til að bæta þá aðstöðu, sem fyrir hendi
er til rannsókna á bráðum veirusjúkdómum. Rannsóknir á svo ólíkum
veirum, sem hér getur verið um að ræða, eru tímafrek yfirleguvinna,
sem verður ekki höfð í hjáverkum, ef einhver árangur á að nást, og
l^knar hætta að senda sýni, ef þeir fá ekki niðurstöður með hæfileg-
Um hraða. Uppskera veirurannsókna árið 1970 verður að teljast mjög
r.Vi‘, og þarf nauðsynlega að komast í beinna samband við þá lækna,
Sem stunda sjúklinga með bráða smitsjúkdóma í heimahúsum. Sýni
a±’ sjúkrahúsum, einkum lyflæknisdeildum, eru lélegt rannsóknarefni,
vegna þess að sjúklingarnir, sem sent er frá, hafa oftast legið í heima-
húsum, meðan auðveldast er að rækta frá þeim veirur, en koma svo
lnn á sjúkrahúsin með alls konar seinni fylgikvilla, þegar lítið eða
ekkert er að finna af virkum veirum og mótefni eru fullhækkuð, svo að
ekki er hægt að sýna fram á, hvort ákveðin sýking er ný eða gömul.
Engar mænusóttarveirur ræktuðust á árinu.
Runnsóknir á árangri mislingabólusetningar hér á landi.
Árið 1962 hófust hér á landi virkar ónæmisaðgerðir gegn mislingum
með veikluðum veirustofni, sem nefndur er Ender’s Edmonston B. Þessi
stofn hefur hér sem annars staðar reynzt haldgóður mótefnavaki. Rann-
soknir á blóðsýnum frá um 350 fullorðnum, sem prófaðir voru tvisvar