Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1970, Blaðsíða 154
1970
— 152 —
myndir af lungum sýna ekkert athugavert í lungunum, og ekki sjást
nein merki um fract. á rifbeinum, þrátt fyrir að klinikin benti ein-
dregið til þess. Sjúkl. telst óvinnufær og fer með fyrstu ferð heim
til sín.“
Einnig liggur fyrir vottorð .... yfirlæknis, dags. 6. marz 1970, svo-
hljóðandi:
„P. S-son, ...., . ...firði, g. sjómaður, f.... 1935, hefur verið
hjá mér til rannsóknar vegna slyss, er hann varð fyrir þann 27. nóv-
ember 1968. Skv. upplýsingum hans sjálfs og skýrslu um slysið frá
Tryggingastofnun ríkisins, er skip hans .... foss var að leysa land-
festar á ... .firði, [voru atvik þau], að landfestarvír slóst í v. fót hans,
og dróst hann upp alla v. hlið og stoppaði við axilla. Hann fékk við
þetta mikið högg og kastaðist í loft upp og í sjóinn milli skips og bryggju,
en hann rankaði fljótlega við sér eftir stutt meðvitundarleysi í sjónum
og var hjálpað upp á dekk skipsins. Hann marðist mikið á b. fótum,
einkum v. Einnig marðist hann á v. læri og v. síðu, og hann hefur senni-
lega eftir kliniskum einkennum að dæma rifbrotnað. Hann mun jafn-
framt hafa tognað í v. axlarlið, og var hann strax mjög sár og lítt
hreyfanlegur.
Rtg.mynd af axlarlið sýndi ekki beináverka. Rtg.mynd af lungum
var eðlileg, og rifbrot sást ekki á rtg.mynd, þótt sennilega væri um
rifbrot að ræða, þar sem hann hafði mjög mikla verki í síðunni og
hóstaði upp blóði. Sj. hafði talsverðan höfuðverk fyrstu vikurnar eftir
slysið, en hann lagaðist tiltölulega fljótt. Strax eftir slysið varð v. öxl
mjög stirð, og hann varð strax var við máttleysi í v. handlegg. Þetta
máttleysi lagaðist dál. við æfingar fyrst, en hefur verið óbreytt síðan
og sízt batnað. Fyrir ca Vá ári síðan tók sj. eftir máttleysi í v. ganglim,
sem hefur heldur ágerzt síðan, og hann segist stinga aðeins við. En
þetta er dál. misjafnt eftir því, hvort hann er þreyttur. Tveim mánuð-
um eftir slysið vildi sj. fara að vinna og gafst upp eftir 2 mán. vegna
máttleysis og verkja í öxlinni. Sj. hefur alltaf verið hraustur áður. Það,
sem mest bagar sj. nú, er máttleysi í v. handlegg og jafnvel ennþá meir
verkirnir og stirðleiki í v. öxl. Getur ekki hreyft öxlina nema með harm-
kvælum.
SJcoSun: Hann er hraustlegur útlits og í fljótu bragði psyckiskt eðlih
Hann er rétthentur, það er engin dysfasi eða dysarthri. Höfuð-
kúpa: Eðlil. Hryggsúla: Eðlil. Heilataugar: Eðlil. lyktarskyn. Sjón:
Ekki prófuð, en augnbotnar eðlilegir og sjónsvið gróft prófað
eðlil. Ljósop eru jöfn, miðlæg, hringlaga og svara vel Ijósi. Augnhreyf-
ingar eðlil. Það er enginn nystagmus og engin ptosis. Corneal-
reflexar lífl. jafnir. Húðskyn í andliti eðlil. og tyggingavöðvar eðlil->
hvað snertir krafta. Það er engin andlitsparesa. Heyrn góð á b. eyrum.
Tilfinning á afturvegg koks er eðlil. Kokreflex eðlil. Gómbogar lyftast