Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1970, Page 165

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1970, Page 165
— 163 1970 7/1972 Gunnlaugur Briem, sakadómari í Reykjavík, hefur með bréfi, dags. 4. júlí 1972, leitað umsagnar læknaráðs í barnsfaðernismálinu: X gegn Y. Málsatvik eru þessi: Hinn 24. febrúar 1969 ól sóknaraðili X meybarn, sem hlaut nafnið Z. 1 desember 1968 giftist sóknaraðili A, og var hún þá barnshafandi. Hinn 9. október 1969 fengu hjónin leyfi til skilnaðar að borði og sæng. Eiginmaðurinn höfðaði mál fyrir bæjarþingi Kópavogs til vefeng- ingar faðerni barnsins, og með dómi bæjarþingsins kveðnum upp 10. júlí 1970, var á grundvelli blóðrannsóknar og annarra atvika, sem fram komu í málinu, talið sannað, að eiginmaðurinn gæti ekki verið faðir barnsins. Sóknaraðili lýsti föður að barninu Y. Varnaraðili hefur neitað að gangast við faðerni barnsins. Sóknaraðili kveðst hafa haft samfarir við varnaraðila 28. eða 29. júní 1968 og aftur næstu helgi á eftir, þ. e. 5. eða 6. júlí. Varnaraðili viður- kennir, að hið síðamefnda sé rétt og vill ekki fortaka, að hið fyrr nefnda sé ekki rétt, en telur útilokað, að getnaður hafi þá átt sér stað. Þá telur hann og, að fleiri geti komið til greina sem feður barnsins. Blóðrannsókn fór fram á málsaðilum og barni, og var hún fram- kvæmd á Rannsóknarstofu háskólans við Barónsstíg. Vottorð rann- sóknarstofunnar eru undirrituð af prófessor dr. ólafi Bjarnasyni og dagsett 18. janúar og 26. nóvember 1971. I báðum vottorðunum er talið, að niðurstaða rannsóknarinnar samrýmist því, að varnaraðili geti verið faðir barnsins. Áður en hið síðarnefnda vottorð var gefið, hafði blóð- sýni verið sent til blóðflokkadeildar Köbenhavns Universitets Retsmedi- cinske Institut, en þar var framkvæmd ákvörðun á flokkunum Gm og Gc. Leitað var álits Jóns Sigurðssonar borgarlæknis um hugsanlegan getnaðartíma barnsins. Vottorð hans er dagsett 10. apríl 1972 og hljóð- ar svo: „Þér hafið, herra sakadómari, með bréfi, dags. 4. þ. m., óskað álits- gerðar minnar um hugsanlegan getnaðartíma barns þess, sem barns- faðernismálið: X gegn Y er risið af. Af vottorði fæðingarlæknis, dags. 24. júní 1969, má ráða, að barnið hafi verið fullburða, er það fæddist. Meðal-meðgöngutími fullburða barna er talinn vera 271 dagur, með 11 daga misvísun til eða frá. Samkvæmt því ættu mestar líkur að vera til, að umrætt barn sé getið á tímabilinu 18. maí til 10. júní 1968. Sé höfð hliðsjón af þyngd bamsins og lengd við fæðmgu, getur það samkvæmt dreifingartöflum F. J. Lindners, Málmey, verið komið undir einhvern tíma á tímabilinu 11. apríl til 24. júlí 1968. Samkvæmt sömu töflum eru 849 % líkur til, að barnið sé getið á tímabilinu 12. maí til 22. Júní sama ár.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.