Studia Islandica - 01.06.1941, Blaðsíða 15
13
að Sæmundur hafi verið 22 ára, er hann kom heim (Odda-
verjaannáll segir, að Sæmundur hafi komið úr skóla af
París 1077, en aðrar heimildir nefna 1076 eða 1078), en
hann var fæddur 1056.* 1 2)
Parísarháskóli var ekki stofnaður, þegar Sæmundur
var þar, en talið er líklegt, að hann hafi sótt skóla þann,
er var tengdur Notre-Dame kirkjunni.
Halldór Hermannsson hefir fundið frumheimildina að
sögunni um Sæmund í Biskupasögum um stjörnufræðina
og flóttann í sögu um Gerbert frá Aurillae, er síðar varð
Sylvester II. páfi (f 1002), og er hún í riti William frá
Malmesbury: Gesta regum Anglorum (ensk þýðing: Will-
iam of Malmesbury: The history of the Kings of England
etc. Translated by J. Sharpe, London 1854, 151—152).12)
Rqgnvaldr jarl kali á Orkneyjum bjó för sína til Jórsala
og kom við í Narbonne á Frakklandi 1152. Með honum
voru tvö íslenzk skáld, Ármóðr og Oddi Htli. Stóð þá svo
á, að Germanus jarl, er hafði ráðið staðnum, var andaður,
en Ermingerðr dóttir hans, er var forkunnarfögur, veitti
þeim áheyrn. Var þeim félögum haldin veizla í borginni
og ortu þeir allir þrír ástavísur til Ermingerðar. Ármóðr
kvað þessa vísu:
Ek mun Ermingerði,
nema annars skop verði,
margr elr sút of svinna,
síðan aldri finna;
værak sæll, ef ek svæfa
(sýn væri þat gæfa),
brúðr hefir allfagrt enni,
eina nótt hjá henni.3)
Thoroddsen próf. í Andvara 1936, 45—56 (Sæmundur fróði og
Svartaskóli).
1) Skv. fsl. annálum (útg. Storms, bls. 108, 318 og 470) og Flat-
eyjarbók III, 1868, bls. 508.
2) Sjá rit Halld. Hermannssonar um Sæmund, bls. 51—52.
3) Sbr. Orkneyingasögu, útg. Sig. Nordals, Köbenhavn 1913, bls.
231—235.