Studia Islandica - 01.06.1941, Blaðsíða 9
FORMÁLI.
Með íslending'um og Frökkum hefir frá fornu fari verið vinátta,
og hefir engan skugga borið þar á. Franskir vísindamenn hafa um
langt skeið heimsótt ísland, einkum á síðustu 100 árum, og fengizt
við margs konar rannsóknir á landi voru og náttúru þess, steinum,
jurtum og jarðmyndunum. Þeir hafa mælt strauma sjávar, dýpt
hans og hita og ritað um þessar rannsóknir aragrúa af ritgerðum,
er bera vott um vísindalega nákvæmni og alúð. Fara þessar rann-
sóknir einkum í vöxt eftir leiðangur Gaimard’s og félaga hans, er
komu hingað 1835 og 1836 og gáfu síðan út afarstórt ritverk í
9 bindum, sem frægt varð víða um lönd. í þeirri för var Marmier,
er samdi bókmenntasögu íslenzka á frönsku. En löngu áður höfðu
franskir vísindamenn tekið að sinna íslenzkum fræðum, m. a. Maza-
rin ráðherra á 17. öld, er safnaði íslenzkum bókum og vildi fá Stefán
Ólafsson skáld til þess að gerast íslenzkur fornfræðingur í París,
þótt úr þeirri för yrði ekki. Á þessum síðustu 100 árum hafa fransk-
ir vísindamenn snúið á frönsku mörgum íslendingasögum, Konunga-
sögum og ýmsum köflum úr ritum Snorra Sturlusonar, báðum Edd-
um, mörgum Fornaldarsögum og samið fræðilegar ritgerðir um
íslenzkar fornbókmenntir. Af síðari tíma ritum hefir hins vegar fátt
verið þýtt á frönsku nema Lilja Eysteins, ein skáldsaga eftir Hall-
dór Kiljan Laxness og nokkur kvæði eftir Tómas Guðmundsson.
Franskir ferðamenn hafa um langt skeið heimsótt Island og ritað
ferðabækur með lýsingum á landi og þjóð, sem bera flestar vott um
hlýjan hug til íslendinga, þótt út af kunni að bregða, enda margar
lítils verðar. Nokkurir Frakkar hafa samið skáldsögur og leikrit
um íslenzk efni eða um líf franskra sjómanna við strendur íslands
eins og Victor Hugo, Pierre Loti o. fl. Öll þessi starfsemi franskra
vísindamanna og rithöfunda hefir aðeins orðið kunn nokkurum hluta
íslendinga. Hins vegar hefir sambúð franskra sjómanna og íslend-
inga um eitt skeið verið mjög náin og telst svo til, að fyrir og um
síðustu aldamót hafi 3—4000 franskir sjómenn stundað veiðar við
strendur íslands. Reistu þeir sér spítala á nokkurum stöðum á land-
inu og höfðust við í landi í eigin húsum, eins og kunnugt er.