Studia Islandica - 01.06.1941, Síða 62

Studia Islandica - 01.06.1941, Síða 62
60 í brúðkaupinu er borið á borð egg og soðið ket og kjamm- ar, síðan kaffi, madeira og portvín og danskt brennivín, og fólki er skemmt með því að lesa upp úr íslendingasög- um frásagnir um sjóræningja og hetjur, er hafi farið til annarra landa, jafnvel til kóngsins í Frakklandi og París- ar, en á meðan gengur tóbakspontan á milli, og sumir reykja Havanavindla. Rómantiskur blær hvílir yfir allri frásögninni. Hann lýsir yndisleik Salvarar og ástartilfinn- ingum prestssonar, er hann biður hennar, náttúrulífi ís- lands og veðurbreytingum, og velsæmistilfinning hans er svo rík, að þegar hann er að lýsa fannkyngi og skíðaferð- um, segir hann, að einasta hættan á að fara niður snjó- brekku sé, að slitna kunni það, sem Englendingar kalla „inexprimable". Sögunni fylgja þrjár sonnettur til Islands, og kveður hann þar um auðnir íslands. Hefir höf. notað þjóðsöguna um Salvör og Bjarna, sem birt er í Þjóðsög- um Jóns Árnasonar, sem uppistöðu í skáldsögu sinni, en vikið henni að ýmsu leyti við til þess að tengja hana við frásögn sína um Englendinginn á brúðkaupsferð. Þá má enn nefna Páques d’Islande eftir Anatole Le Braz, er kom út í París fyrir allmörgum árum (í ritsafn- inu Collection Nelson, ártalslaus útgáfa), er að ýmsu leyti líkist Pécheur d’Islande eftir Pierre Loti. Þessi bók Páques d’Islande lýsir páskahátíð, er haldin er um borð í frönsku fiskiskipi úti á Faxaflóa. Ungur sjómaður, 25 ára gamall, fær ákafa blóðspýju og deyr, en biður þess, að honum verði ekki varpað í hafið, eins og siður er um þá, sem deyja á sjó úti, heldur verði hann jarðaður í Reykjavík. Er farið að ósk hans og krossmark sett á gröf hans með nafni og aldri. Síðan víkur sögunni heim til Bretagne, og er lýst þar ættingjum hins látna sjómanns og siðum og venjum fólksins.1) 1) I sambandi við frönsku fiskiskipin, sem stunduðu fiskveiðar við Island, má geta þess, að þá starfaði öflugt velgerðarfélag í Frakklandi „La Societé des Æuvres de Mer“, stofnað 1894, sem átti nokkuð af frönskum spitölum hér á landi og einnig spítalaskipin,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Studia Islandica

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.