Studia Islandica - 01.06.1941, Blaðsíða 34
32
-----Ótal þar er að líta
einfalda krossa úr tré,
letrað er á þá alla
aðeins: Marin frangais.
-----Þó finnst mér ilmský þar anga,
er inn í reitinn ég kem.
Aftanblær örveikt syngur
yfir þeim requiem.
Ofan tek ég í auðmýkt,
ósjálfrátt beygi kné.
Angelus álengdar hljómar.
— Adieu, Marin frangais!
rrásagnir íslenzkra annála og blaða um slíka viðburði
«ru mjög stuttar.
Fer hér á eftir frásögn Þjóðólfs 3. maí 1873 af skips-
strandi á Austfjörðum 6. marz s. á. og er tekin hér upp,
af því að ætla má, að þessi atburður hafi orðið tilefni
hinnar heimsfrægu sögu Pierre Loti’s: Pécheur d’Islande.
Frásögnin hljóðar þannig: „— voru skipsströnd þessi
ekki nema 4 (höfðu áður borizt fregnir um, að þau væru
,sex) með fyrsta og báru þau öll að í senn, aðfaranóttina
6. marz þ. á. í ofsamiklu hafveðri, og ráku öll upp á Nesja-
fjörur (milli Hornafjarðarfljóta og Vestrhorns) í Horna-
firði. Skip þessi nefndust:
1. Oiseau de la mer, frá Portrieus, skipstj. Jouron.
2. Fleur de la mer, frá Paimpol, skipstj. Guillous.
3. Exprés, frá Portrieus, skipstj. Dollo.
4. Notre Dame, frá Paimpol, skipstj. Buchaire.
Allir 4 skipstjórarnir, er nú voru nefndir, höfðu farizt,
sömuleiðis hvert mannsbarn af tölul. 3., Exprés, og af
tölulið 4., Notre Dame; aftr náðu að bjarga sér 20
manns af samtals 23 skipverjum af tölul. 2., Fleur de la
mer, og 11 af 23 af Oiseau de la mer; komust þá lífs af
31 manns alls af öllum 4 skipunum, en 56 lík ráku á land
alls, 2 þeirra í Hofssókn í Suðurmúlasýslu, en hin 54