Studia Islandica - 01.06.1941, Blaðsíða 25
23
var þar við nám og lézt á unga aldri, Axel Thorsteinson,
er barðist með Bandamönnum á vesturvígstöðvunum í
fyrri heimsstyrjöldinni, Halldór Kiljan Laxness og Tómas
Guðmundsson. Þá ber og að nefna ungfrú Thoru Friðriks-
son, er fór á unga aldri til Frakklands og síðan hefir dval-
izt þar margsinnis. Hefir hún kynnzt frönskum bókmennt-
um betur en flestir eða allir fslendingar og hefir átt veru-
legan þátt í að kynna franskar bókmenntir á íslandi og
einkum að auka þekkingu íslendinga á franskri tungu.
Var hún formaður franska félagsins Alliance fran§aise
um langt árabil.
Enn er ógetið Jóns Sveinssonar, hins heimskunna rit-
höfundar, er dvalizt hefir allt sitt líf erlendis, ýmist í
Frakklandi, Belgíu eða annars staðar. Hefir hann ritað
ýmislegt um fsland í frönsk tímarit og blöð.1) Allmargir
aðrir íslendingar hafa dvalizt langvistum við háskólanám
í París á síðustu áratugum, og hafa nokkurir þeirra tekið
embættispróf í ýmsum greinum,2) en tveir tekið doktors-
próf við Parísarháskóla.3) Hefir íslenzka ríkisstjórnin
fyrir allmörgum árum keypt eitt herbergi í stúdenta-
garðinum Maison des Provinces og ætlað íslenzkum stúd-
entum, er þar dveljast við nám.
Allmargir listamenn íslenzkir hafa dvalizt í París og
hefir m. a. Gunnlaugur Blöndal efnt til málverkasýninga
þar og Eggert Stefánsson söngvari haldið hljómleika og
flutt þar íslenzka tónlist.4)______________________________
1) Sjá Halldór Hermannsson: Catalogue of the Icel. Collection
etc. 1914, bls. 569, sbr. Haraldur Hannesson: Nonni áttræður. Eim-
reiðin 1937, 413—431. „Um Nonna“ heitir grein eftir Magna Guð-
mundsson í Lesbók Morgunbl. 1939, 421—423.
2) Þeir eru: Magnús G. Jónsson og Þórarinn Björnsson í frönsku,
Bjöm L. Jónsson í veðurfræði, Kristinn Björnsson í læknisfræði,
Eiríkur Sigurbergsson í viðskiptafræðum.
3) Björg C. Thorláksson: Le fondement physiologique des in-
stincts des systémes nutritif, neuromusculaire et génital. Paris 1926.
Símon-Jóhannes Ágústsson: La doctrine d’éducation de Georg Ker-
schensteiner. Paris 1936.
4) Eggert birti grein, Musique Islandáise, í Le Courier musical