Studia Islandica - 01.06.1941, Síða 32
30
arinn (1911—1913). Hann nam íslenzka tungu og varð
afburðasnjall í henni og hefir ritað nokkurar greinar á
íslenzku.1) Hann tók þátt í heimsstyrjöldinni og kom aft-
ur til Islands og var ræðismaður Frakka 1917—1923 (lézt
sama ár, 11. des.).2)
Eftir Courmont tók við frönskukennslu við háskólann
Barraud (1913—14) ; féll hann í heimsstyrjöldinni 1915.
Síðan féll frönskukennslan stundum niður, unz hún var tek-
in upp aftur 1934, í náinni samvinnu viðAlliance fran§aise,
og hefir síðan aukizt og dafnað. Páll Sveinsson annaðist
kennsluna 1914—15, frú Jolivet frá París kenndi 1932 um
skeið og varð henni mjög ágengt og færðist nýtt líf í
frönskukennsluna. Síðan hafa annazt kennsluna ýmsir,
eins og t. d. Boissin 1934, ungfrú Petibon 1934—35, Magn-
ús G. Jónsson 1935—36 og síðar, A. Naert, Jean Haupt og
loks Eiríkur Sigurbergsson 1941—42. Haustið 1942 varð
franska föst kennslugrein við háskólann (til B.A.-prófs
og í viðskiptafræðum) og hefir Magnús G. Jónsson verið
ráðinn lektor. En á þessum árum hafa ýmsir fyrirlestrar
verið fluttir við háskólann, m. a. flutti ungfrú Thora Frið-
riksson fyrirlestur um Victor Hugo á 50 ára dánardegi
hans. Prófessor A. Jolivet frá París hefir flutt nokkura
fyrirlestra, ræðismaður Frakka H. Voillery mörgum sinn-
um og loks ungfrú Yvonne Salmon 1942 og mad. de Brézé
1944.
Meðal Frakka þeirra, er starfað hafa við kaþólska trú-
boðið í Reykjavík, var síra J. M. Baudoin, gáfaður maður
1) Ritgerðir eftir Courmont á íslenzku eru: Ferðagrein í Skin-
faxa, júní 1913. Guðrún Ósvifursdóttir, Skírnir 1913, 193 o. áfr.
Erlendar tungur, Skírnir 1920, 166 o. áfr. Hann hefir og þýtt á
frönsku, í samvinnu við höfund, dr.ritgerð Guðm. Finnbogasonar:
L’ Intelligence sympathique par Gudm. Finnbogason. Paris 1913.
2) Um Courmont hafa ritað Sig. Nordal í Eimreiðinni XXX, 6—
12, Guðm. Friðjónsson í Eimr. XXX, 287—290 (Andri hinn franski,
kvæði), G. M. í Óðni IX, 77, G. M. í Lögréttu VIII, 103 (kveðju-
ljóð) og Jónas Jónsson (Merkir samtíðarmenn, Reykjavík 1938, bls.
47 o. ófr.).