Milli mála - 2020, Blaðsíða 263
Milli mála 12/2020 263
HJÖRLEIFUR RAFN JÓNSSON
10.33112/millimala.12.14
Eiginkona Vesandons, hin fallega og ljúfa Matsí, segist ekki geta
verið án hans svo hún og börn þeirra tvö fylgja honum í útlegð. Gerir
hún allt til að þjóna honum og styrkja hann, meðal annars að virða
ósk hans um einlífi og hreinlífi eins og einsetumanni sæmdi. Svo sér
Vesandon fyrir að maður nokkur muni koma og biðja af honum
börnin. Hann villir fyrir Matsí og segir henni að fara út í skóg. Andar
í dýralíki halda svo aftur af henni þangað til börnin eru farin. Jörðin
skalf þegar hann gaf börnin frá sér. Einn guðanna sér fyrir að næst
gefi hann frá sér konuna, svo hann bregður sér í mannslíki, biður um
að fá Matsí, fær hana og gefur hana svo Vesandon strax aftur. Þar eð
hún er þá orðin gjöf frá öðrum getur hann ekki gefið hana frá sér
lengur. Þetta linnulausa örlæti Vesandons prins eykur stöðugt verð-
leika hans sjálfs og leiðir til þess að hann verður Búdda í næsta lífi.4
Hér liggur galdurinn og húmorinn á bak við sögu Sídaóruang.
Matsí er ung kona, ómenntuð, fátæk og þriggja barna móðir. Hún
vill helga sig trúnni og er algjörlega fær um að slíta af sér bönd
hversdagsins, þar á meðal að segja skilið við börnin. Hún ætlar bara
að gefa þau. Viðhorf hennar er jafngilt því og hægt væri að gera ráð
fyrir hjá munkum með langa menntun og óvenju mikinn trúar-
þroska; „í hjarta mínu finn ég hvorki fyrir ánægju né óánægju. Þessi
mannslíkami sem við fæðumst með hann tilheyrir okkur í raun alls
ekki, fólk fæðist og svo deyr það, þessi börn eru ekki mín eign.“ Hér
er sjónarhorn hennar það sama og Vesandon prins er hampað fyrir,
algjörlega laust við bönd hversdagslífsins og er þess í stað örlætið
og óeigingirnin holdi klædd. Hann sem karlmaður, prins, auðugur
og valdamikill, verður spámaður og trúarleiðtogi og er sagan af
honum flutt með alls kyns hætti í löndum teravada búddisma (Sri
Lanka, Mjanmar, Taílandi, Laos og Kambódíu) tvö þúsund og
fimm hundruð árum seinna. Hún, ómenntuð og fátæk stelpa með
þrjú börn, er óskiljanleg og forkastanleg. Jörðin skalf ekkert þegar
hún yfirgaf börnin sín heldur var Matsí okkar tíma flutt á lögreglu-
stöðina og svo send í geðrannsókn.
Sagan af Vesandon prinsi er lesin á ákveðnum helgidögum og í
sumum löndum og landshlutum fer einnig fram skrúðganga með
4 Frumtextinn er til í enskri þýðingu, sjá The Perfect Generosity of Prince Vesantara. Margaret Cone og
Richard F. Gombrich, þýð. Bristol: The Pali Text Society, 2011.