Þjóðmál - 01.06.2020, Blaðsíða 6
4 ÞJÓÐMÁL Sumar 2020
Það þarf að selja mikið af rúðupissi og pylsum
til að ná upp í þennan kostnað. Það væri þó
ósanngjarnt að halda því fram að hinn sérstaki
kunnáttumaður hefði ekki unnið fyrir honum.
Hann hefur meðal annars komið að sölu
verslana Kjarvals á Hellu og Krónunnar á
Hvolsvelli eins og Markaðurinn benti á. Líf
og hagur íbúa í Rangárvallasýslu hlýtur að
gjörbreytast til hins betra þegar Krónan lokar
á Hvolsvelli.
Eins og dálkahöfundurinn Óðinn benti á í
Viðskiptablaðinu nokkrum dögum síðar er
þetta dálítið eins og að hafa tvo forstjóra á
launum. Sá pistill Óðins hefur þó haft þau
eftir mál að kunnáttumaðurinn, sem er þjóð-
þekktur lögmaður og fyrrverandi þingmaður
Samfylkingarinnar, hefur stefnt ritstjóra
Viðskiptablaðsins fyrir meiðyrði vegna
skrifanna. Eitt af því sem Óðinn nefndi í pistli
sínum var að kunnáttumaðurinn og aðstoðar-
forstjóri Samkeppniseftirlitsins væru góðir
vinir. Það hafði Markaðurinn einnig gert.
***
Málið er eitt af mörgum sem vekur fólk til
umhugsunar um það hvernig stjórnendur
Samkeppniseftirlitsins hegða sér í nálgun
sinni gagnvart atvinnulífinu. Sem dæmi má
nefna að rannsókn á meintum samkeppnis-
brotum skipafélaga hefur nú tekið meira en
áratug. Nýlega sektaði eftirlitið Coca-Cola
á Íslandi og Ölgerðina vegna máls frá árinu
2011 um uppröðun vara í verslunum. Sú
kvörtun kom frá gosverksmiðju sem nú er
löngu hætt starfsemi, eðlilega.
Samkeppniseftirlitið getur ekki borið fyrir
sig skort á fjármagni eða mannafla. Það er
eitthvað annað sem býr að baki sem erfitt er
að útskýra. Á sama tíma er það staðreynd að
stjórnendur í atvinnulífinu veigra sér við því
að leita til eftirlitsins eftir leiðbeiningum og
reyna eftir fremsta megni að eiga engin önnur
samskipti við starfsmenn stofnunarinnar en
þau sem teljast óhjákvæmileg.
***
Til að toppa þetta stundar Samkeppnis-
eftirlitið það að kaupa auglýsingar á Facebook
til að koma á framfæri skoðunum starfsmanna
hennar. Þeirra á meðal var andstaða þeirra
við frumvarp iðnaðarráðherra um breytingar
á samkeppnislögum og samhliða breytingum
á Samkeppniseftirlitinu. Sú vinna og sá tími
sem starfsmenn stofnunarinnar vörðu, eða
eyddu, í baráttu sinni gegn frumvarpinu var
ekki til eftirbreytni. Það hlýtur að vekja furðu
þegar stjórnendur ríkisstofnunar birta efni
sem inniheldur aðeins þeirra eigin skoðanir
og ríkar tilfinningar til þess ofurvalds sem
stofnunin færir þeim. Undir þessu sitja stjórn-
málamenn. Ráðherra leggur fram frumvarp
og starfsmenn eftirlitsstofnunarinnar fara í
opinbert stríð við hann í kjölfarið.
***
Þetta er þó ekki alveg svona einfalt því það er
einnig pólitískur þrýstingur á að gera þessar
valdamiklu stofnanir enn valdameiri. Það sást
meðal annars í umræðum á Alþingi nú í vor
þegar þingmenn Samfylkingarinnar mótmæltu
harðlega öllum breytingum á samkeppnis-
lögum. Nálgun þeirra er hvort í senn einföld
og barnaleg, þar sem gengið er út frá þeirri
forsendu að stjórnendur í atvinnulífinu séu
alla jafna óheiðarlegir og því þurfi öflugar
eftirlitsstofnanir til að beisla þá niður. Það
vill svo vel til að það er einmitt það sem
stjórnendur Samkeppniseftirlitsins kunna svo
vel, að beisla menn niður með valdi.
***
Það fer ekki vel á því þegar stjórnmálamenn
kalla eftir því að ríkið beiti sér gegn atvinnu-
lífinu. Við sáum gott dæmi um það á nýliðnum
vetri þegar Helga Vala Helgadóttir, löglærður
þingmaður Samfylkingarinnar, kallaði eftir
því að eignir Samherja yrðu frystar. Það gerði
hún eftir að hafa horft á fréttaþátt um meint
brot félagsins erlendis. Allt í því máli á eftir að
skýrast betur en það má öllum vera ljóst hversu
miklum skaða slík aðgerð sem frysting eigna
felur í sér hefði valdið. Um níu mánuðum eftir
að umræddur þáttur var sýndur hefur enn
ekkert komið út úr rannsókn yfirvalda sem
gæti mögulega réttlætt slíka aðgerð.